
Verðlagseftirlit ASÍ hefur tekið saman dæmi um hvernig verðlagshækkanir á liðnu ári (ágúst ’21-’22) geta birst í mánaðarlegum útgjöldum heimilanna. Dæmin sýna hvernig hækkanir á nokkrum helstu kostnaðarliðum (húsnæði, samgöngum, matvöru og heimilisbúnaði) birtast í mánaðarlegum útgjöldum hjá mismunandi heimilisgerðum. Um þessar mundir verða heimili fyrir þungum áhrifum af verðlagshækkunum og áhrifum af hækkun vaxta.…Lesa meira








