Fréttir

true

Korn fyrir kýrnar í Laxárholti

Kornrækt tíðkaðist á Íslandi á fyrstu öldum byggðar, en lagðist niður í nokkrar aldir og var ekki tekin aftur upp fyrr en á þeirri tuttugustu. Kornrækt hefur aukist mikið í landinu þrátt fyrir stöku erfið ár og er mikilvæg búbót, ekki síst sem innlend fóðurframleiðsla á tímum loftslagsbreytinga. Blaðamaður Skessuhorns skrapp vestur á Mýrar í…Lesa meira

true

Grundarfjörður og Stykkishólmur komnir með 5G

5G tenging Nova er komin í gagnið í Stykkishólmi og Grundarfirði og segir í fréttatilkynningu frá Nova að mörgum bæjarbúum þar standi nú til boða áður óþekktur nethraði. Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova segir í samtali við Skessuhorn að búið sé að vinna að því að fá góða 5G tengingu á þetta svæði í nokkra mánuði…Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar við nýtt útivistarsvæði

Hvalfjarðarsveit hefur gengið frá verksamningi við Fagurverk ehf. um gerð útivistarsvæðis í Melahverfi og var samningurinn þess efnis undirritaður 1. september sl. Tilboðsfjárhæð er 98,9 milljónir króna og eru framkvæmdir þegar hafnar. Á útivistarsvæðinu verður meðal annars körfuboltavöllur, ærslabelgur, hellulagt hátíðartorg, grillhús og leiktæki fyrir börn á öllum aldri.Lesa meira

true

Hafró hyggst leggja niður starfsemi í Ólafsvík

Bæjarráð Snæfellsbæjar samþykkti fyrir stuttu að fela bæjarstjóra að koma á fundi bæjarráðs með forstjóra Hafrannsóknastofnunar til að fá að vita áform stofnunarinnar um framtíð útibús hennar í Ólafsvík. Á þeim fundi kom fram að stofnunin hefði í hyggju að loka útibúi sínu í Ólafsvík um næstu áramót. Að sögn Kristins Jónassonar bæjarstjóra segja forsvarsmenn…Lesa meira

true

Heita Svanir, fagrir sem svanir og syngja eins og…

„Langar þig að syngja í kór,“ spyrja félagar í karlakórnum Svönum á Akranesi. „Nú er tækifærið. Karlakórinn Svanir er að hefja æfingar nk. fimmtudag kl. 19:00. Æfingar eru einu sinni í viku í tónlistarskólanum. Markmið kórsins er að æfa vel en um leið skemmta sér í góðum félagsskap. Áhugasamir endilega mæta, það verður tekið vel…Lesa meira

true

Íbúar hvers svæðis hafa helst hag af samgöngubótum

Gísli Gíslason, fyrrum stjórnarformaður Spalar, er einn þeirra sem hafa sent inn ítarlega umsögn um áform um frumvarp um stofnun opinbers hlutafélags um uppbyggingu og rekstur samgönguinnviða. Þar fjallar hann um gjaldtökuhugmyndir ráðuneytisins er varðar jarðgöng og segir m.a: „Ástæða er til að benda á eina af megin niðurstöðum starfshóps samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um þessi…Lesa meira

true

Rafhlaupahjól með litíum rafhlöðum geta reynst hættuleg

Í fréttum að undanförnu hefur verið greint frá eldsvoðum á höfuðborgarsvæðinu sem rekja má til þess að kviknað hafði í rafhlöðum hlaupahjóla. Rétt er að rifja upp frétt Skessuhorns frá því fyrr á árinu þar sem fjallað er um málið. Þá benti Bjarni Kr Þorsteinsson slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar á að töluvert hafi verið um að kviknað…Lesa meira

true

Leggjast gegn áformum um endurvinnslu kerbrota

Umhverfisvaktin við Hvalfjörð eru samtök sem samanstanda af íbúum á Hvalfjarðarströnd og sunnan úr Kjós. Um helgina sendi Umhverfisvaktin erindi til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar þess efnis að hún leggist eindregið gegn áætlun fyrirtækisins Gerosion Ltd um að endurvinna við Hvalfjörð kerbrot frá álverum. Fréttavefurinn Kjarninn greindi frá því fyrr í mánuðinum að Gerosion Ltd áformi að…Lesa meira

true

Uppfærð frétt: Hvalfjarðargöng eru opin fyrir umferð

Uppfært klukkan 11:55 Búið er að opna fyrir umferð á ný í Hvalfjarðargöng en þau voru lokuð í 40 mínútur vegna bilaðs flutningabíls. Uppfært klukkan 11:28 Vegagerðin sagði í samtali við Skessuhorn að niðri í göngunum væri flutningabíll með sprungið dekk, unnið er að því að setja nýtt dekk undir bílinn. Enginn sjúkrabíll er á…Lesa meira

true

Verkleg próf hjá Slökkiliði Grundarfjarðar

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun stóð fyrir verklegum prófum fyrir slökkviliðsmenn í Grundarfirði um liðna helgi. Byrjað var á föstudagskvöldinu þar sem Þorlákur Snær Helgason tók einn slökkviliðsmann í verkleg próf í slökkviliðsmaður 1 og 2. Á laugardeginum var svo einn maður sem kláraði stjórnendanámskeið og svo fór dagurinn í verklegar æfingar fyrir slökkviliðsmaður 3 og 4…Lesa meira