5G jafnast á við hröðustu ljósleiðaratengingar Ljósm. Nova

Grundarfjörður og Stykkishólmur komnir með 5G

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "5G tenging Nova er komin í gagnið í Stykkishólmi og Grundarfirði og segir í fréttatilkynningu frá Nova að mörgum bæjarbúum þar standi nú til boða áður óþekktur nethraði. Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova segir í samtali við Skessuhorn að búið sé að vinna að því að fá góða 5G tengingu á þetta svæði í nokkra mánuði og nú sé búið að gera ýmsar prófanir og mælingar á búnaðinum og nethraðinn sé orðinn ásættanlegur, og vel það. „5G er í raun alveg sambærilegt við ljósleiðara en þessi tenging er 10x öflugri en 4G, segir Margrét.\r\n\r\nAllir íbúar í þessum tveimur þéttbýliskjörnum geta nú sótt um búnað hjá Nova og fengið til sín heimatengingu, þá er hægt að tengja sjónvarp og öll önnur fjarskiptatæki við 5G netið. Margrét segir að Nova hafi síðustu ár verið að byggja upp 4G og 4,5G á þessu svæði og víðar og dreifbýlin geti nýtt sér þær tengingar þótt ekki sé komið 5G þar. „Við erum jafnframt að horfa til þess hvar þörfin er mest og erum núna að horfa á nokkra staði sem við hyggjumst setja upp 5G á,“ segir Margrét en gefur ekki upp hvaða staðir það séu.\r\n\r\nÍ fréttatilkynningunni segir jafnframt að 5G skili að jafnaði 150-200 Mb/s hraða á sekúndu og fer reglulega upp fyrir 1.000 Mb/s. Þá er jafnframt haft eftir framkvæmdastjóra fjarskipta Nova, Benedikti Ragnarssyni, að „þeir íbúar sem eru með tæki sem styðja 5G, eru með eina hröðustu nettengingu sem fyrirfinnst á Íslandi og reyndar heiminum öllum. 5G hraði jafnast á við öflugustu ljósleiðaratengingar þar sem þú getur hlaðið niður allt að 2,3 GB á sekúndu og svartíminn er undir 10 millisekúndur.“",
  "innerBlocks": []
}
Grundarfjörður og Stykkishólmur komnir með 5G - Skessuhorn