
Frá Grundartanga. Ljósm. úr safni
Leggjast gegn áformum um endurvinnslu kerbrota
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Umhverfisvaktin við Hvalfjörð eru samtök sem samanstanda af íbúum á Hvalfjarðarströnd og sunnan úr Kjós. Um helgina sendi Umhverfisvaktin erindi til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar þess efnis að hún leggist eindregið gegn áætlun fyrirtækisins Gerosion Ltd um að endurvinna við Hvalfjörð kerbrot frá álverum. Fréttavefurinn Kjarninn greindi frá því fyrr í mánuðinum að Gerosion Ltd áformi að byggja verksmiðju á Grundartanga til endur- og áframvinnslu kerbrota úr öllum þremur álverum landsins.\r\n\r\nNorðurál hefur, samkvæmt Umhverfisvaktinni, starfað á undanþágu síðustu ár við að losa kerbrot í flæðigryfjur meðfram ströndinni inni í Hvalfirði en kerbrotin eru mengandi spilliefni. Undanþáguna veitti Aluminium Stewardship Initiative en það er stofnun sem vottar álframleiðslu í heiminum. Umhverfisvaktin hefur fylgst vel með því sem fram fer á iðnaðarsvæðinu á Grundartanga og vekur athygli á því að undanþágunnar er hvergi getið þannig að augljóst sé. Þá vakni upp spurningar hvers vegna þessi leynd hvíli um undanþáguna og enn fremur hvort annar leyndur umhverfissóðaskapur sé á iðnaðarsvæðinu.\r\n\r\nMeð erindi sínu til sveitarstjórnar Hvalfarðarsveitar er Umhverfisvaktin ekki að óska eftir að Hvalfjarðarsveit leysi þennan vanda sem uppi er vegna starfsemi Norðuráls, heldur óskar hún eftir að Hvalfjarðarsveit standi við stefnu sína um að dregið verði úr losun mengandi efna frá iðnaðarsvæðinu á Grundartanga.",
"innerBlocks": []
}