Unnsteinn Jóhannsson á kornakrinum sem nú bíður þreskingar. Ljósm. gj

Korn fyrir kýrnar í Laxárholti

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Kornrækt tíðkaðist á Íslandi á fyrstu öldum byggðar, en lagðist niður í nokkrar aldir og var ekki tekin aftur upp fyrr en á þeirri tuttugustu. Kornrækt hefur aukist mikið í landinu þrátt fyrir stöku erfið ár og er mikilvæg búbót, ekki síst sem innlend fóðurframleiðsla á tímum loftslagsbreytinga. Blaðamaður Skessuhorns skrapp vestur á Mýrar í vikunni sem leið og heimsótti Unnstein Jóhannsson bónda í Laxárholti til að forvitnast um kornræktina hans, en þar bylgjuðust þá gulir akrar af nær þroskuðu korni og biðu þreskingar.\r\n\r\n<strong>Kolefnissporin sparast</strong>\r\nUnnsteinn hefur alltaf verið stórtækur í ræktuninni og ræktar nú korn á 30-35 hekturum lands. Hann nýtir afurðirnar í kýrnar, en í Laxárholti er stórt bú með um 65 mjólkandi kúm. „Ég held að uppskeran núna verði það góð að kornið dugi alveg fyrir þær í vetur,“ segir hann. „Við það sparast allnokkur kolefnisspor.“ Hann er orðinn reynslumikill í kornræktuninni, keypti fyrstu þreskivélina 1996 eða fyrr. „Jarðvegurinn hér er fínn, en við verðum samt alltaf að kalka,“ segir hann. „Það fara svona 4-5 tonn af kalki í hvern hektara og það er skeljasandur úr fjörunni. Það bætir svo reyndar líka jarðveginn fyrir túnræktina og kemur sér vel í endurræktuninni. Við ræktum korn í þrjú ár á ákveðnu svæði, en nýtum það svo sem tún og þannig gengur þetta koll af kolli og passar mjög vel saman.“\r\n\r\nLíf kornbóndans er samt enginn dans á rósum, þetta er gríðarleg vinna og gengur misvel eftir árferði. „Í fyrrasumar var eitt versta sumar sem ég man eftir. En líklega fékk ég þá samt um 40% af uppskerunni sem mér fannst frábært; bjóst ekki við að fá neitt. En fyrst það var hægt að rækta korn í fyrra þá er alltaf hægt að rækta korn. Það er svo heppilegt að við fáum enga vindstrengi hérna af því við erum ekki nálægt fjöllum þar sem meiri hætta er á að þetta leggist niður.\r\n\r\n<em>Lengra viðtal við Unnstein má sjá í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Korn fyrir kýrnar í Laxárholti - Skessuhorn