Gjaldheimtuhlið Spalar við Hvalfjarðargöng. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Íbúar hvers svæðis hafa helst hag af samgöngubótum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gísli Gíslason, fyrrum stjórnarformaður Spalar, er einn þeirra sem hafa sent inn ítarlega umsögn um áform um frumvarp um stofnun opinbers hlutafélags um uppbyggingu og rekstur samgönguinnviða. Þar fjallar hann um gjaldtökuhugmyndir ráðuneytisins er varðar jarðgöng og segir m.a: „Ástæða er til að benda á eina af megin niðurstöðum starfshóps samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um þessi mál þar sem segir: „Starfshópurinn leggur til að gjaldtaka af umferð til að standa undir kostnaði við flýtiframkvæmdir miðist við hverja framkvæmd fyrir sig og að gjald sé í samræmi við kostnað þeirrar framkvæmdar.“\r\n\r\nEinnig bendir Gísli á samgöngu- og innviðaáætlun Vesturlands þar sem segir að álagning veggjalds komi aðeins til greina í verkefnum sem ekki eru á langtímaáætlun ríkissjóðs, enda sé það verulegur hagur íbúanna að framkvæmdum verði flýtt. Gísli segir mikilvægt sé að hugmyndafræði ríkisins um veggjöld falli að ofangreindum sjónarmiðum.\r\n\r\n<em>Sjá umsögn Gísla hér að neðan:</em>\r\n\r\n<a class=\"link-to-pdf\" title=\"Umsögn - opinbert hlutafélag 2022\" href=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/09/Umsogn-opinbert-hlutafelag-2022.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"attachment noopener wp-att-56205\"><img class=\"alignnone size-medium wp-image-56206\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/09/Umsogn-opinbert-hlutafelag-2022-pdf-600x849.jpg\" alt=\"thumbnail of Umsögn – opinbert hlutafélag 2022\" width=\"212\" height=\"300\" /></a>",
  "innerBlocks": []
}
Íbúar hvers svæðis hafa helst hag af samgöngubótum - Skessuhorn