
Valgeir Ingólfsson hefur staðið vaktina hjá Vegagerðinni í Borgarnesi í næstum hálfa öld. Í þessu ævistarfi sínu hefur hann í gegnum tíðina sinnt fjölbreyttum verkefnum; unnið á vélum á borð við veghefla, skiltabíla og á málningarbíl, verið verkstjóri og nú síðast var hann yfirverkstjóri á þjónustudeild Vestursvæðis sem hefur aðsetur í Borgarnesi. Þegar hann lítur…Lesa meira








