Fréttir

true

Birta verklagsreglur vegna flutnings líflamba

Flutningur sauðfjár yfir varnarlínur er bannaður samkvæmt lögum um dýrasjúkdóma nr. 25/1993. Matvælastofnun er þó heimilt að veita undanþágu frá þeirri reglu fyrir kynbótagripi, en hingað til hefur það ákvæði eingöngu verið notað til að flytja kynbótahrúta á sæðingastöðvar. Þá er í gildi sérstök reglugerð um sölu frá líflambasölusvæðum. „Í ljósi þess að nú hafa…Lesa meira

true

Mögulegt að hlaup fari í Hvítá úr lóni við Langjökul

Veðurstofa Íslands bendir á að gervitunglamyndir sýni að á síðustu vikum hefur vatnsstaða Hafrafellslóns í jaðri Langjökuls hækkað jafnt og þétt sökum úrkomu og bráðnunar jökulsins. Mögulegt er að það hlaupi úr lóninu á næstu dögum eða vikum. Hlaup varð úr þessu sama lóni fyrir réttum tveimur árum og þrefaldaðist þá vatnið í Hvítá. Hlaupvatnið…Lesa meira

true

Topplið KFG náði jafntefli gegn Kára

KFG og Kári áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Samsung vellinum í Garðabæ. KFG er í harðri baráttu um að komast upp í 2. deild á meðan Kári siglir lygnan sjó um miðja deild. Káramenn byrjuðu betur í leiknum og komust yfir eftir hálftíma leik með…Lesa meira

true

Minningarmót um Guðráð Sigurðsson

Minningarmót um Guðráð Sigurðsson (Gurra) verður haldið á Garðavelli á Akranesi á morgun, laugardag. Það eru vinir Guðráðs, félagar í Frímúrarareglunni og skólaárganginum ´71 sem standa fyrir mótinu og er það þegar uppselt. Samkvæmt mótshöldurum er öllum heimilt að koma og borða veislumat eftir mótið. Ræst verður út af öllum teigum kl 10:00 og reiknað…Lesa meira

true

Viðkomubrestur í rjúpnastofninum

Náttúrufræðistofnun vaktar viðkomu rjúpnastofnsins hér á landi. Talning sem gerð var á Vesturlandi og Norðausturlandi í lok júlí og byrjun ágúst nú í sumar gefur slæmar vísbendingar um stofninn. Þannig hefur viðkoma rjúpunnar á Norðausturlandi aldrei verið lakari frá því mælingar hófust árið 1964 og á Vesturlandi var útkoman með því lakari frá því mælingar…Lesa meira

true

Vinnuskólanum lokið í Stykkishólmi

Föstudagurinn 12. ágúst var síðasti vinnudagur sumarsins hjá vinnuskólanum í Stykkishólmi. Af því tilefni var ungmennunum komið á óvart og boðið á kajak, farið var í leiki og grillað í lok dags. Fram kemur á vef Stykkishólmsbæjar að starfsfólk vinnuskólans hafi unnið frábæra vinnu í sumar og fær þakkir fyrir þeirra framlag við að halda…Lesa meira

true

Húllumhæ á Bókasafni Akraness

Lokahátíð sumarlesarans var haldin á miðvikudaginn á Bókasafni Akraness en átakið hófst 3. júní og stóð yfir til föstudagsins 12. ágúst. Öllum börnum á aldrinum 6-12 ára gafst kostur á að skrá sig í sumarlesturinn og fá að láni bækur að eigin vali til að lesa, sér að kostnaðarlausu. Markmið verkefnisins er sem fyrr að…Lesa meira

true

Grænmetissala verður áfram í Narfaseli

Laurent og Lola Balmer í Narfaseli í Melasveit eru nú á förum og hafa selt jörðina. Þar hafa þau stundað grænmetisrækt og fleira og selt afurðirnar gestum og gangandi í um tvö ár. Leið þeirra liggur nú á vit nýrra ævintýra í Suður Ameríku þangað sem þau flytja bráðlega ásamt sonum sínum fjórum. Þau hafa…Lesa meira

true

Skortir á að heimasmölun sé sinnt

Þrír sauðfjárbændur í Lundarreykjal sendu nýverið bréf til sveitarstjórnar Borgarbyggðar þar sem þeir vekja athygli á að smölunarskyldu nokkurra jarða í innanverðum dalnum sé ekki sinnt. Farið er þess á leit að sveitarstjórn geri úrbætur. Í bókun byggðarráðs síðastliðinn fimmtudag segir að fjallskilanefndir sendi ábúendum og jarðaeigendum fjallskilaseðil, þar sem m.a. komi fram hvenær heimalandasmölun…Lesa meira

true

Varað við mikilli úrkomu á norðvestanverðu landinu

Spáð er norðlægri átt, 5-10 m/sek í dag, en 10-18 um landið vestanvert síðdegis, hvassast norðvestantil á landinu. Rigning með köflum á norðanverðu landinu, talsverð eða mikil norðvestantil, skúrir eystra, en annars úrkomuminna. Hiti 7 til 15 stig og svalast á Vestfjörðum. Á morgun, laugardag, verður norðan 5-15 m/sek, hvassast vestantil. Rigning norðantil, skúrir fyrir…Lesa meira