Börnin fengu að leika listir sínar með fjöður. Ljósm. vaks

Húllumhæ á Bókasafni Akraness

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Lokahátíð sumarlesarans var haldin á miðvikudaginn á Bókasafni Akraness en átakið hófst 3. júní og stóð yfir til föstudagsins 12. ágúst. Öllum börnum á aldrinum 6-12 ára gafst kostur á að skrá sig í sumarlesturinn og fá að láni bækur að eigin vali til að lesa, sér að kostnaðarlausu. Markmið verkefnisins er sem fyrr að viðhalda lestrarfærninni sem börnin öðlast um veturinn en um leið er lögð áhersla á að börnin lesi það sem þau sjálf langar til, hvort sem um er að ræða bók á sérstöku áhugasviði eða góða sögubók.\r\n\r\nAlls skráðu 246 börn sig í sumarlesturinn að þessu sinni og voru 169 virkir lesendur. Þeir lásu samtals 92.736 blaðsíður í 1.311 bókum og segir á síðu bókasafnsins að starfsfólk sé ánægt með þátttökuna og vill þakka öllum þeim sem voru með. „Þetta var skemmtilegt þema og gaman að taka á móti ykkur. Hlökkum til næsta sumars, hver veit hvað verður í boði þá. Við erum nú þegar farnar að leggja höfuðið í bleyti…“\r\n\r\nHinn stórskemmtilegi og hæfileikaríki Jörgen Nilsson hélt uppi stuðinu, sýndi listir sínar og kenndi krökkunum nokkur brögð. Blaðamaður Skessuhorns kíkti við á bókasafninu og tók nokkrar myndir af fjörinu.",
  "innerBlocks": []
}
Húllumhæ á Bókasafni Akraness - Skessuhorn