Fráfarandi og nýir grænmetisræktendur í Narfaseli. Til vinstri Ásta Karen og Filip og til hægri Lola og Laurent Balmer. Ljósm. Narfasel.

Grænmetissala verður áfram í Narfaseli

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Laurent og Lola Balmer í Narfaseli í Melasveit eru nú á förum og hafa selt jörðina. Þar hafa þau stundað grænmetisrækt og fleira og selt afurðirnar gestum og gangandi í um tvö ár. Leið þeirra liggur nú á vit nýrra ævintýra í Suður Ameríku þangað sem þau flytja bráðlega ásamt sonum sínum fjórum. Þau hafa byggt íbúðarhús og gróðurhús í Narfaseli auk geymslu og lítillar verslunaraðstöðu og hafa selt framleiðslu sína víða, meðal annars í Ljómalind í Borgarnesi.\r\n\r\nNýir eigendur jarðarinnar eru Ásta Karen Helgadóttir og Filip Polách, ungt par sem flytur nú á Vesturlandið af höfuðborgarsvæðinu. Þau taka við í september og stefna á að halda ræktuninni áfram, reikna þó með að þurfa að skala aðeins niður næsta sumar og vera með færri grænmetistegundir en Laurent og Lola hafa verið með fyrst um sinn.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_55587\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-55587 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/08/Graenmetissala-verdur-afram-i-Narfaseli_1-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Skilti Laurents og Lolu við þjóðveg nr. 1 undir Hafnarfjalli hefur vakið athygli vegfarenda. Ljósm. gj.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Grænmetissala verður áfram í Narfaseli - Skessuhorn