
Eftir flóðið aðfararnótt 18. ágúst 2020 mátti sjá að einungis vantaði 30 cm upp á að vatnið næði upp á brúargólf Hvítárbrúarinnar við Húsafell. Ljósm. mm.
Mögulegt að hlaup fari í Hvítá úr lóni við Langjökul
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Veðurstofa Íslands bendir á að gervitunglamyndir sýni að á síðustu vikum hefur vatnsstaða Hafrafellslóns í jaðri Langjökuls hækkað jafnt og þétt sökum úrkomu og bráðnunar jökulsins. Mögulegt er að það hlaupi úr lóninu á næstu dögum eða vikum. Hlaup varð úr þessu sama lóni fyrir réttum tveimur árum og þrefaldaðist þá vatnið í Hvítá. Hlaupvatnið fór fyrst um farveg Svartár sem alla jafnan er þurr eða vatnslítill og þaðan í Hvítá. Mannvirki skemmdust ekki í þessu flóð, en fiskar drápust í ánni og mikill sandur barst á land þar sem áin flæddi yfir bakka sína. Fáir urðu vitni að sjálfu flóðinu þar sem það varð eftir að skyggja tók aðfararnótt 18. ágúst 2020 og hafði dvínað um morguninn.\r\n\r\n<strong>Mikilvægt að vera á varðbergi</strong>\r\n\r\nVeðurstofan rekur vatnshæðarmæli við Kljáfoss í Hvítá í landi Hurðarbaks í Reykholtsdal. Sá mælir sýndi flóðatopp upp á um 260 rúmmetra á sekúndu í flóðinu 2020, sem er um 180 rúmmetrar umfram grunnrennsli á þessum árstíma. Í skýrslu sem Veðurstofan vann um hlaupið kom m.a. fram að rúmmál flóðsins hafi alls verið u.þ.b. 3,4 milljónir rúmmetrar. „Ekki er hægt að segja til um hver stærð mögulegs hlaups nú gæti orðið, en vatnsstaða lónsins nú er svipuð og hún var í aðdraganda hlaupsins 2020. Í hlaupinu 2020 tvöfaldaðist rennsli árinnar á örfáum klukkustundum þegar vöxtur hlaupsins var hvað hraðastur,“ segir í frétt Veðurstofunnar.\r\n\r\nMikilvægt er að vera á varðbergi gagnvart mögulegu hlaupi úr Hafrafellslóni. Ef hleypur úr lóninu með svipuðum hætti og 2020 er ekki búist við teljandi áhrifum á mannvirki. Árið 2020 flæddi upp að bitum brúarinnar yfir Hvítá ofan við Húsafell. Á ýmsum stöðum neðar í farveginum hafði hlaupið nokkur áhrif, t.d. flæddi upp á engi við Brúarás og neðan við Hraunfossa. Fólki sem er á ferð við Svartá eða dvelur á bökkum Hvítár, t.d. veiðimönnum, stafar mest hætta af hlaupinu og verður því að vera á varðbergi gagnvart hækkandi vatnsyfirborði. Íbúum á svæðinu er einnig bent á að huga að mögulegum áhrifum hlaups á eignir og búfénað nærri bökkum Hvítár.\r\n\r\nÍ kjölfar hlaupsins 2020 voru gerðir straumfræðilegir líkanreikningar sem gerðu ráð fyrir hlaupi með 50% meira hámarksrennsli. Niðurstöður þeirra reikninga benda til að jafnvel við slíka rennslisaukningu muni ekki flæða upp úr farvegi Hvítár norðan Húsafells og því ólíklegt að sumarhúsabyggðin sé í hættu.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-55599\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/08/Mogulegt-hlaup-i-Hvita-ur-loni-vid-Langjokul_2-600x338.jpg\" alt=\"\" />\r\n\r\n<strong>Myndavél komin upp</strong>\r\n\r\nElmar Snorrason hefur nú sett upp myndavél ofan við brúnna á Hvítá við Húsafell. Myndavélin tekur mynd með mínútu millibili. Slóðin á myndavélina er: <a href=\"http://ellisnorra.is/hvita/\">http://ellisnorra.is/hvita/</a>\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"55602,55603\"]",
"innerBlocks": []
}