
Byrjunarlið Kára í leiknum á móti KFG. Ljósm. Kári
Topplið KFG náði jafntefli gegn Kára
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "KFG og Kári áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Samsung vellinum í Garðabæ. KFG er í harðri baráttu um að komast upp í 2. deild á meðan Kári siglir lygnan sjó um miðja deild. Káramenn byrjuðu betur í leiknum og komust yfir eftir hálftíma leik með marki frá Gabríel Þór Þórðarsyni en sjö mínútum síðar jafnaði Jóhann Ólafur Jóhannsson fyrir heimamenn og staðan jöfn í hálfleik, 1-1.\r\n\r\nAxel Freyr Ívarsson kom Kára aftur yfir í leiknum eftir rúmlega tíu mínútna leik í þeim seinni en Ólafur Bjarni Hákonarson jafnaði metin fyrir KFG á 67. mínútu og staðan jöfn á ný. Ekki tókst leikmönnum liðanna að skora sigurmarkið það sem eftir lifði leiks og jafntefli staðreynd, lokastaðan 2-2.\r\n\r\nHeilmikil spenna er á toppi og botni deildarinnar. Í efri hlutanum berjast KFG, Sindri, Dalvík/Reynir, Víðir og KFS um sætin tvö sem gefa sæti í 2. deild á meðan ÍH, KH og Vængir Júpiters berjast um það að reyna að sleppa við fall í fjórðu deildina.\r\n\r\nNæsti leikur Kára er næsta miðvikudag gegn Augnablik sem er með 24 stig eins og Kári í 6. og 7. sæti deildarinnar. Leikurinn verður í Akraneshöllinni og hefst klukkan 19.15.",
"innerBlocks": []
}