Skortir á að heimasmölun sé sinnt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þrír sauðfjárbændur í Lundarreykjal sendu nýverið bréf til sveitarstjórnar Borgarbyggðar þar sem þeir vekja athygli á að smölunarskyldu nokkurra jarða í innanverðum dalnum sé ekki sinnt. Farið er þess á leit að sveitarstjórn geri úrbætur. Í bókun byggðarráðs síðastliðinn fimmtudag segir að fjallskilanefndir sendi ábúendum og jarðaeigendum fjallskilaseðil, þar sem m.a. komi fram hvenær heimalandasmölun skuli fara fram. Smölun heimalanda er ekki eitt af hlutverkum fjallskilanefnda, og því hlutast þær ekki til um heimasmölun að öðru leyti. „Byggðarráð telur sig ekki geta hlutast til um smölun heimalanda að svo stöddu en leggur áherslu á að þetta er víða vandi og leita þarf lausna þar sem um mikið hagsmunamál er að ræða,“ segir í bókun byggðarráðs.",
  "innerBlocks": []
}
Skortir á að heimasmölun sé sinnt - Skessuhorn