Fréttir

true

Einar Margeir stóð sig vel á Evrópumeistaramóti unglinga í sundi

Hinn 17 ára Einar Margeir Ágústsson frá Sundfélagi ÍA synti frábærlega á Evrópumeistaramóti unglinga sem fram fór í Búkarest í Rúmeníu í liðinni viku. 494 unglingar frá 42 löndum tóku þátt. Í 100 metra bringusundi setti hann Íslandsmet í unglingaflokki þegar hann bætti sinn besta tíma um rúma sekúndu og synti á tímanum 1.03.45 en…Lesa meira

true

Ný tímabundin hjáleið vegna framkvæmda í Borgarnesi

Nú standa yfir framkvæmdir á Borgarbraut á milli Böðvarsgötu og Egilsgötu í Borgarnesi. Verið er að endurnýja fráveitulagnir, hitaveitu- og vatnslagnir ásamt því sem yfirborð götu og gangstíga verður endurnýjað. Verkið er á vegum Veitna, Vegagerðarinnar, Rarik og Borgarbyggðar. Byggðarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt að útbúin verði tímabundin hjáleið yfir Kveldúlfsvöll og hluta Berugötu á meðan…Lesa meira

true

5G samband komið í Ólafsvík

Nú hefur Ólafsvík bæst í hóp þeirra bæjarfélaga sem hafa aðgang að 5G neti og mörgum bæjarbúum stendur því til boða áður óþekktur nethraði. Nú hefur Nova sett upp 65 senda í öllum landshlutum og er áætlað að þeir verði orðnir 200 árið 2024. „Fyrir bæjarbúa í Ólafsvík þýðir innleiðingin mun meiri afköst en áður…Lesa meira

true

Þungatakmarkanir á brúnni yfir Laxá í Kjós

„Vegna skemmda á brú er búið að setja 10 tonna ásþungatakmörkun og 40 tonna takmörkun á heildarþyngd ökutækja á brúna yfir Laxá í Kjós, á Hvalfjarðarvegi. Undanþáguflutningar yfir þeim mörkum fer Þingvallaveg, Kjósarskarðsveg og fyrir Hvalfjörð. Vagnlestir og einstök ökutæki 40 tonn og yfir sem og ökutæki sem ekki uppfylla 10 tonna ásþunga verða að…Lesa meira

true

Ögurball, skata og rabararbaragrautur

Hið goðsagnakennda og árlega Ögurball verður haldið í Ögri við Ísafjarðardjúp laugardaginn 16. júlí nk. Aðgöngumiða fylgir tjaldstæði, aðgangur að sveitaballinu og heimagerður rabarbaragrautur með rjóma sem gott er að gæða sér á milli dansspora. Ögurhátíðin byrjar á föstudagskvöldi 15.júlí með barsvari „pubquiz,“ og fylgt eftir með brennu og brekkusöng. Á laugardagsmorgun verður söguganga um…Lesa meira

true

Góður gangur í vestlensku ánum

„Það hefur verið fín veiði hjá okkur í Þverá og Kjarará en árnar hafa gefið 385 laxa,“ sagði Styrmir Elí Ingólfsson þegar við spurðum um árnar og hann bætti við: „Síðasta holl í Þverá gaf 48 laxa og síðasta holl í Kjarará 35. Já, það er fínn gangur,“ sagði Styrmir. Norðurá er kominn í 340…Lesa meira

true

Grátlegt tap Skagamanna sem rekja má til slapprar byrjunar

Skagamenn töpuðu 2:3 gegn Víkingum í leik sem fram fór í Víkinni í gær í Bestu deild karla í knattspyrnu. Staðan var ekki vænleg eftir tuttugu mínútna leik hjá Skagamenn en á þeim tíma höfðu Íslands- og bikarmeistararnir skorað tvívegis. Strax á 13. mínútu töpuðu Skagamenn boltanum klaufalega á miðsvæðinu og Logi Tómasson komst einn…Lesa meira

true

Baráttustig Káramanna í Garðinum

Káramenn sýndu mikinn karakter eftir að þeir lentu tveimur mörkum undir eftir aðeins níu mínútna leik gegn Víðismönnum á Nesfisksvellinum í Garði á laugardaginn. Þeir náðu að jafna leikinn og ná í mikilvægt stig gegn efsta liði 3. deildarinnar. Það var Jóhann Árni Arnarson sem kom heimamönnum í Víði yfir strax á 7. mínútu leiksins…Lesa meira

true

Jafntefli hjá Víkingi gegn Haukum

Víkingur Ólafsvík gerði 1:1 jafntefli gegn Haukum úr Hafnarfirði í leik sem fram fór í 2. deildinni á Ásvöllum í Hafnarfirði á föstudagskvöldið. Þegar skammt var til leiksloka stefndi allt í markalaust jafntefli en á 85. mínútu náði Bjartur Bjarmi Barkarson forystunni fyrir Víking og góður sigur blasti við þeim, en því miður náðist það…Lesa meira

true

Stefna að fækkun stofnana ríkisins

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur sett á laggirnar starfshóp um einföldun á stofnanakerfi ríkisins. Markmiðið er að halda áfram að bæta þjónustu, auka skilvirkni, stuðla að sveigjanleika í skipulagi og framþróun og auðvelda stafræna þróun ríkisins. Í dag eru A-hluta stofnanir íslenska ríkisins tæplega 160 talsins. Við þá tölu bætist á annan tug ríkisfyrirtækja í…Lesa meira