
Vegna veðurútlits hefur verið ákveðið að fresta Bátadögum á Breiðafirði 2022 til laugardagsins 16. júlí, eða um eina viku. „Hlökkum til að sjá sem flesta báta og áhafnir þeirra taka þátt þá,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

Vegna veðurútlits hefur verið ákveðið að fresta Bátadögum á Breiðafirði 2022 til laugardagsins 16. júlí, eða um eina viku. „Hlökkum til að sjá sem flesta báta og áhafnir þeirra taka þátt þá,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

Í ársbyrjun 2022 birti Náttúrustofa Vesturlands frétt um að kennsl hefðu verið borin á tæplega eitt þúsund mismunandi háhyrninga sem ljósmyndaðir voru við Snæfellsnes. Nú hefur í fyrsta sinn verið staðfest að villtir háhyrningar fara á milli Íslands og Noregs. Er sú niðurstaða fengin með samanburði á ljósmyndum sem staðfesta að í það minnsta þrír…Lesa meira

Skorradalshreppi barst 3. júní síðastliðinn erindi frá Vegagerðinni þar sem tilkynnt er að fella eigi niður af vegaskrá Fellsveg nr. 5094-01 frá og með næstu áramótum. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er föst búseta ekki lengur fyrir hendi og uppfyllir vegurinn því ekki tilgreint skilyrði þess að teljast til þjóðvega. Sveitarfélagið andmælir fyrirhugaðri niðurfellingu Fellsvegar og vísar…Lesa meira

Rokk í Reykholti er tónleikadagskrá 16. júlí næstkomandi sem helguð verður hljómsveitinni The Evil Pizza Delivery Boys. Hljómsveitin var unglingahljómsveit sem starfaði að mestu í Borgarfirði og nærsveitum af og til á árunum 1988 til 1991. Hún tók tvívegis þátt í Músíktilraunum og gerði eina breiðkassettu. Einnig hitaði hljómsveitin upp á sveitaböllum fyrir goðsagnir einsog…Lesa meira

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um veiðar í atvinnuskyni. Við breytinguna aukast aflaheimildir til strandveiða um 874 tonn af þorski, sem fengust í skiptum fyrir heimildir á makríl á skiptimarkaði, 50 ónýtt tonn sem voru færð frá frístundaveiðum og 150 ónýtt tonn vegna línuívilnunar. Samtals er því 1.074 tonnum bætt við strandveiðipottinn.…Lesa meira

Sunnudaginn 10. júlí kl. 16 verða Þjóðlög og ævintýri á sumartónleikum í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Þar flytja þær Sigríður Hjördís Indriðadóttir og Þóra Kristín Gunnarsdóttir verk fyrir flautu og píanó eftir Bartók, Copland og Prokofiev. Dagskrá: Béla Bartók: Suite paysanne hongroise (útsetning: Paul Arma) Aaron Copland: Dúó fyrir flautu og píanó Sergei Prokofiev: Sónata í…Lesa meira

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Skorradalshrepps 5. júlí síðastliðinn var tekin fyrir umsókn Skógræktar ríkisins um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á tveimur jörðum í hreppnum. Annars vegar var sótt um leyfi til að planta 50 þúsund birkiplöntum á 36 ha svæði í landi Bakkakots, sem að mestu er ofan 300 metra hæðar yfir sjó. Þar sem…Lesa meira

Olíuleka varð vart á nokkrum stöðum í Grundarfirði í morgun. Brást Slökkvilið Grundarfjarðar hratt við og hreinsaði þar sem mest var, við Kjörbúðina á Grundargötu. Var hreinsunarstarfi lokið upp úr klukkan 13. Ekki er vitað úr hvaða ökutæki olían lak.Lesa meira

Veitingastaðurinn Lemon hefur opnað nýjan stað á Olís í Borgarnesi. Um er að ræða míní útgáfu af veitingastaðnum en þar er hægt fá brot af því besta frá Lemon. Fjórar samlokur eru í boði; Spicy chicken, Chickencado, Parmella og Pescado og fjórir safar, Nice Guy, Alabama, Good Times og Elvis. Lemon er skyndibitastaður sem að…Lesa meira

Skallagrímur mætti í gærkvöldi liði Árbæinga í toppslag A-riðils 4. deildar í knattspyrnu. Var leikurinn á Fylkisvellinum í Árbæ. Fyrir leikinn var Skallagrímur í öðru sæti deildarinnar og Árbæingar í því þriðja, tveimur stigum á eftir Skallagrími. Árbæingar byrjuðu leikinn betur og var það Eyþór Ólafsson sem skoraði fyrsta mark leiksins á 38. mínútu fyrir…Lesa meira