
Svipmynd úr Skorradal. Ljósm. Kristín Jónsdóttir.
Vildu fella niður viðhald á Fellsvegi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skorradalshreppi barst 3. júní síðastliðinn erindi frá Vegagerðinni þar sem tilkynnt er að fella eigi niður af vegaskrá Fellsveg nr. 5094-01 frá og með næstu áramótum. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er föst búseta ekki lengur fyrir hendi og uppfyllir vegurinn því ekki tilgreint skilyrði þess að teljast til þjóðvega. Sveitarfélagið andmælir fyrirhugaðri niðurfellingu Fellsvegar og vísar til upplýsinga frá Þjóðskrá Íslands þess efnis að skráð er föst búseta að Stóru-Drageyri. Vegurinn uppfylli því skilyrði þjóðvega og ber að hafa stöðu héraðsvegar áfram. Skipulags- og byggingarnefnd hreppsins samþykkti á síðasta fundi sínum að senda Vegagerðinni tilkynningu þar að lútandi.",
"innerBlocks": []
}