Flauta og píanó á sumartónleikum í Saurbæ

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sunnudaginn 10. júlí kl. 16 verða Þjóðlög og ævintýri á sumartónleikum í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Þar flytja þær Sigríður Hjördís Indriðadóttir og Þóra Kristín Gunnarsdóttir verk fyrir flautu og píanó eftir Bartók, Copland og Prokofiev.\r\n\r\n<em>Dagskrá:</em>\r\n\r\nBéla Bartók: Suite paysanne hongroise (útsetning: Paul Arma)\r\nAaron Copland: Dúó fyrir flautu og píanó\r\nSergei Prokofiev: Sónata í D-dúr op. 94\r\n\r\n<strong>Sigríður Hjördís Indriðadóttir</strong> hóf flautunám árið 2002 í Tónlistarskóla Akraness og fór þaðan í frekara flautunám til Hallfríðar Ólafsdóttur við Tónlistarskóla Reykjavíkur. Árið 2013 vann Sigríður einleikarakeppni Tónlistarskólans. Haustið 2014 stundaði hún Bakkalárnám í konunglega listaháskólanum í Antwerpen þar til hún gekk í Listaháskóla Íslands haustið 2015. Sigríður var ein af fjórum ungum einleikurum 2016 og spilaði einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún spilaði inn á plötu Bjarkar Guðmundsdóttur, Utopia, hefur leikið með sinfóníuhljómsveit unga fólksins, ungsveit sinfóníuhljómsveitar Íslands, ungsveit sinfóníuhljómsveitarinnar í Helsingborg, kammersveitinni Caput og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Sigríður útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með B.Mus gráðu haustið 2017 og stefnir á mastersnám í flautuleik haustið 2022 í Carnegie Mellon University, school of music.\r\n\r\n<strong>Þóra Kristín Gunnarsdóttir</strong> hefur komið fram á tónlistarhátíðum og tónleikum víðsvegar um Sviss og Ísland, m.a. á sumartónleikum á Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, Klassík í Vatnsmýrinni og Velkomin heim í Hörpu, tónleikahátíðinni Chesa Planta Musiktage og á tónleikum á vegum Liedrezital Zürich. Hún starfar aðallega sem meðleikari og í kammerhópum en einnig sem einleikari með ZHdK Strings. Síðastliðin þrjú ár hefur hún verið meðleikari á masterklassnámskeiði fyrir söngvara í Frakklandi. Þóra hóf tónlistarnám sitt á Akureyri og lærði síðar hjá Peter Máté við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún lauk meistaragráðu í píanókennslu og píanóleik með samspil sem aukagrein frá tónlistarháskólanum í Luzern árið 2017. Árið 2020 lauk hún annarri meistaragráðu í samspili og meðleik frá listaháskólanum í Zürich. Þóra hefur tvisvar hlotið styrki úr styrktarsjóði Birgis Einarssonar 2014 og 2017 og styrki frá KEA 2011 og 2018. Þóra kennir á píanó við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.\r\n\r\nÞetta er fjórða tónleikaárið í Hallgrímskirkju í Saurbæ, Hvalfirði en grunnhugmynd tónleikanna, sem haldnir verða í kirkjunni sjálfri, er að viðhalda staðnum sem menningarstað og mun hann með tímanum vonandi verða aðdráttarafl fyrir landsmenn sem og erlenda ferðamenn.\r\n\r\nAðgangseyrir er 3.000 kr. og eru allir velkomnir.",
  "innerBlocks": []
}
Flauta og píanó á sumartónleikum í Saurbæ - Skessuhorn