
Háhyrningur. Ljósmynd: Marie-Thérèse Mrusczok / Orca Guardians Iceland / Náttúrustofa Vesturlands.
Háhyrningar fara á milli Íslands og Noregs
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í ársbyrjun 2022 birti Náttúrustofa Vesturlands frétt um að kennsl hefðu verið borin á tæplega eitt þúsund mismunandi háhyrninga sem ljósmyndaðir voru við Snæfellsnes. Nú hefur í fyrsta sinn verið staðfest að villtir háhyrningar fara á milli Íslands og Noregs. Er sú niðurstaða fengin með samanburði á ljósmyndum sem staðfesta að í það minnsta þrír háhyrningar ferðuðust milli landanna tveggja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá verndarsamtökunum Orca Guardians og Náttúrustofu Vesturlands.\r\n\r\nHáhyrningar eru ein af þrjátíu og fimm tegundum höfrunga og jafnframt sú stærsta þeirra. Greint er á milli háhyrninga út frá stærð og lögun bakhyrnunnar og grás bletts (söðulblettur) fyrir aftan og til hliðar við bakhyrnuna. Hver háhyrningur er einstakur að þessu leyti. Byggð hefur verið upp ítarleg einstaklingaskrá um háhyrninga við Snæfellsnes með því að taka hágæðaljósmyndir af hverjum þeirra og vista þær í gagnagrunn sem notaður er til að skrásetja hvar og hvenær þeir sjást og í hvaða félagsskap.\r\n\r\nHáhyrningarnir þrír sem hér um ræðir hafa sést á þremur svæðum við Ísland, þ.e. á Faxaflóa nærri Reykjavík, á Skjálfanda við Norðausturland og við Snæfellsnes á Vesturlandi. Hafa þeir lagt að baki leiðina til Noregs (loftlína um 1.600 km) á 45 dögum eða minna.\r\n\r\nÞetta er fyrsta dæmi um háhyrninga sem fara á milli Íslands og Noregs, ef frá er skilinn Keiko, háhyrningurinn úr kvikmyndinni „Free Willy“ en honum var sleppt við Vestmannaeyjar og synti hann sjálfur alla leið til Noregs.\r\n\r\nÞetta eru þó ekki fyrstu dæmin um ferðir háhyrninga á milli Íslands og annarra landa, því nú þegar hafa Orca Guardians Iceland og samstarfsaðilar þess staðfest ferðir 29 einstaklinga á milli Snæfellsness og Skotlands. Þar fyrir utan fóru fjórir einstaklingar frá Íslandi til Ítalíu, þar af synti einn úr þeim hópi alla leið til Líbanon og Ísrael („Ferðalag Riptide“).\r\n\r\nTekið er fram að allar ofangreindar uppgötvanir hefðu ekki verið mögulegar án mikils og vaxandi tengslanets rannsakenda, hvalaskoðunarfyrirtækja og hvalaáhugafólks.",
"innerBlocks": []
}