{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um veiðar í atvinnuskyni. Við breytinguna aukast aflaheimildir til strandveiða um 874 tonn af þorski, sem fengust í skiptum fyrir heimildir á makríl á skiptimarkaði, 50 ónýtt tonn sem voru færð frá frístundaveiðum og 150 ónýtt tonn vegna línuívilnunar. Samtals er því 1.074 tonnum bætt við strandveiðipottinn.\r\n\r\n„Með þessu hækkar hlutfall strandveiða af leyfilegum heildarafla þorsks upp í rúm 5% og hefur ekki svo stórum hluta leyfilegs heildarafla þorsks áður verið ráðstafað til strandveiða,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Fjórtánda strandveiðisumarið frá því strandveiðum var komið á stendur nú yfir og er þessi ráðstöfun liður í aðgerðum til að festa strandveiðar betur í sessi enda skipta strandveiðar sköpum fyrir margar fjölskyldur í landinu. Einnig hefur matvælaráðaherra komið á þeirri breytingu til hagræðingar fyrir strandveiðisjómenn að Fiskistofa mun sjálfkrafa fella strandveiðileyfi úr gildi þegar strandveiðar verða stöðvaðar með auglýsingu í Stjórnartíðindum. Því er ekki er lengur þörf á að óska eftir niðurfellingu strandveiðileyfis til Fiskistofu 20. dag mánaðar áður en til stóð að hætta veiðum.",
"innerBlocks": []
}
Strandveiðikvótinn aukinn um rúm þúsund tonn - Skessuhorn