Fréttir

true

Jólaljósaperugetraun í Borgarbyggð

Jólatréð í Borgarbyggð hefur í ár vakið verðskuldað athygli fyrir glæsileika og litadýrð. Á hverju ári er lögð mikil vinna í að finna rétt tré og koma því fyrir í Skallagrímsgarði áður en hafist er handa við að skreyta það. Frá þessu segir á vef Borgarbyggðar en oft hafa sprottið upp umræður og vangaveltur um…Lesa meira

true

Komin tilboð í byggingarrétt á 115 íbúðum á Sementsreit

Komin eru tilboð í byggingarétt á allt að 115 íbúðum á 6 lóðum á Sementsreit. Eftir er að úthluta um 300 íbúðum til viðbótar á svæðinu, sbr. gildandi skipulag. Á vef Akraneskaupstaðar er fjallað um tilboðin sem bárust og niðurstöður matsnefndar. Tilboðin í byggingarréttinn og stigin sem tilboðin hlutu: Bjóðendur                                 Stig Bryggja 2 ehf.                           25,5…Lesa meira

true

Jóhann Lind Ringsted giftir Japani í hjáverkum

Borgnesingurinn Jóhann Lind Ringsted hefur búið í landi hinnar rísandi sólar, Japan, í ein tíu ár. Hann býr þar ásamt eiginkonu sinni Ayaka og dótturinni Hönnu í hafnarborginni Sendai í norðurhluta Japan og starfar þar sem kennari. Kennarastarfið er þó ekki það eina sem hann sinnir en hann nýtir helgarnar til þess meðal annars að…Lesa meira

true

Fallið frá uppbyggingu íbúðakjarna í Jörundarholti

Bæjarstjórn Akraness hefur fallið frá áformum um byggingu íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Jörundarholti á Akranesi. Íbúðakjarnanum var ætlaður staður á svæði á milli efra og neðra Jörundarholts sem í dag er óbyggt en nýtt af íbúum undir útivist, knattspyrnuiðkun og fleira. Þar eru grasflatir, lítið leiksvæði, spennistöð og göngustígur. Óhætt er að segja að…Lesa meira

true

ÍA vann sinn fyrsta sigur í tólftu tilraun

ÍA og Hrunamenn mættust í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Fyrir leik voru Skagamenn án sigurs í deildinni og Hrunamenn með fjóra sigra og gestirnir því mun líklegri til sigurs í leiknum. En Skagamenn létu slíkar fortölur ekkert á sig fá og gáfu…Lesa meira

true

Vígsludagur búsetukjarna í Ólafsvík

Í gær var nýr búsetukjarni vígður við hátíðlega athöfn í Ólafsvík. Sveinn Þór Elinbergsson forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga segir í samtali við Skessuhorn að þjónustuíbúðakjarninn sé í nýrri byggingu við Ólafsbraut 62-64. Húsið er 441 fermetri að stærð og þar eru fimm einstaklingsíbúðir þar sem fatlaðir einstaklingar munu búa í sjálfstæðri búsetu með stuðningi…Lesa meira

true

Gústi Linn söng I´ll be Home for Christmas

Fimmtándi gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Það var Mosfellingurinn Ágúst Bernhardsson Linn, Gústi Linn, sem söng lagið I´ll be home for Christmas eftir Walter Kent við texta eftir Kim Gannon. Margir góðir hafa gert þessu lagi skil, meðal annars Bing Crosby, Frank Sinatra og Michael Bublé. Gústi er það…Lesa meira

true

Jólablað Skessuhorns komið út

Jólablað Skessuhorns 2021 er komið úr prentun og á leið til áskrifenda. Blaðið er að þessu sinni 120 síður og stappfullt af ýmsu áhugaverðu efni, auglýsingum og kveðjum. Ýmsa fasta liði er þar að finna, svo sem fréttaannál ársins, mynda- og krossgátur, kveðjur úr héraði, fréttir, hugvekju og á þriðja tug áhugaverðra viðtala. Blaðið er…Lesa meira

true

„Ég vil búa í samfélagi þar sem fólk er boðið velkomið“

Skessuhorn tók á dögunum tali sagnfræðinginn, rithöfundinn og hlaðvarpsstjórnandann Sigrúnu Elíasdóttur. Spjallið leiddi út um víðan völl, enda hefur Sigrún tekið sér ýmislegt áhugavert fyrir hendur í gegnum árin. Hún er einstæð móðir sem missti líkamlega heilsu ung, hún hefur alla tíð glímt við kvíða sem hún er ófeimin að ræða og hefur mikinn húmor…Lesa meira

true

Gísli Höskuldsson látinn

Gísli Höskuldsson bóndi og hrossaræktandi frá Hofsstöðum og síðar Uppsölum í Hálsasveit lést 12. desember síðastliðinn. Gísli varð 95 ára og einum degi betur, en hann var fæddur 11. desember árið 1926 að Saurbæ í Villingaholtshreppi, einn fjögurra barna hjónanna Höskuldar Eyjólfssonar og Gíslínu Magnúsdóttur. Eftirlifandi eiginkona Gísla er Kristfríður Björnsdóttir. Þau giftu sig 1963…Lesa meira