
Skagamenn gulir og glaðir eftir sigurinn í gær. Ljósm. vaks
ÍA vann sinn fyrsta sigur í tólftu tilraun
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "ÍA og Hrunamenn mættust í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Fyrir leik voru Skagamenn án sigurs í deildinni og Hrunamenn með fjóra sigra og gestirnir því mun líklegri til sigurs í leiknum. En Skagamenn létu slíkar fortölur ekkert á sig fá og gáfu tóninn strax í byrjun leiks og komust í 8:0. Hrunamenn náðu að koma til baka undir lok leikhlutans og minnka muninn í eitt stig en Daði Már Alfreðsson sá til þess að munurinn var þrjú stig þegar liðin fengu sér vatnspásu fyrir næsta fjórðung, staðan 20:17 fyrir ÍA. Skagamenn héldu áfram frumkvæðinu í öðrum leikhluta, náðu að halda Hrunamönnum í þægilegri fjarlægð yfirleitt og höfðu átta stiga forskot í hálfleik, 46:38.\r\n\r\nSkagamenn höfðu taglir og haldir í þriðja leikhluta, hleyptu Hrunamönnum aldrei nálægt og höfðu níu stiga forystu fyrir lokafjórðunginn, staðan 61:52. Þar var ljóst að Skagamenn ætluðu ekki að láta sigurinn renna sér úr greipum, drifnir áfram af þeim Cristopher Clover sem var drjúgur í stigaskorun og Hendry Engelbrecht sem var afar grimmur í varnarfráköstunum. Um miðjan fjórða leikhlutann var munurinn orðinn 20 stig og ljóst að Skagamenn voru að nálgast sinn fyrsta sigur í vetur. Hrunamenn reyndu hvað þeir gátu en aldrei varð nein spenna að einhverju marki og Skagamenn fögnuðu öruggum sigri og sínum fyrstu stigum í vetur. Áðurnefndir Clover og Engelbrecht voru bestu leikmenn ÍA í leiknum ásamt þeim Þórði Frey Jónssyni sem hitti alls úr sex þriggja stiga skotum og Ómari Erni Helgasyni sem var liðinu mikilvægur með sínum mikla baráttuhug.\r\n\r\nStigahæstir hjá ÍA í leiknum voru þeir Cristopher Clover með 26 stig, Þórður Freyr Jónsson með 19 stig, Ómar Örn Helgason með 13 stig og Hendry Engelbrecht með 6 stig og 16 fráköst. Hjá Hrunamönnum var Clayton Ladine með 26 stig og 10 stolna bolta, Karlo Lebo með 13 stig og 13 fráköst og Yngvi Freyr Óskarsson með 12 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Skagamanna er gegn liði Álftaness sem er í öðru sæti deildarinnar með 18 stig í mikilli baráttu við Hauka og Hött um að komast upp í Subway deildina. Leikurinn fer fram næsta föstudag á Akranesi og hefst klukkan 19:30.",
"innerBlocks": []
}