Gísli tekur gráan kostagrip úr ræktun sinni til kostanna. Myndin er frá 2010, en hana tók Guðlaugur Óskarsson.

Gísli Höskuldsson látinn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gísli Höskuldsson bóndi og hrossaræktandi frá Hofsstöðum og síðar Uppsölum í Hálsasveit lést 12. desember síðastliðinn. Gísli varð 95 ára og einum degi betur, en hann var fæddur 11. desember árið 1926 að Saurbæ í Villingaholtshreppi, einn fjögurra barna hjónanna Höskuldar Eyjólfssonar og Gíslínu Magnúsdóttur. Eftirlifandi eiginkona Gísla er Kristfríður Björnsdóttir. Þau giftu sig 1963 og hófu þá búskap á Hofsstöðum. Saman eignuðust þau Gísli og Fía fjögur börn; þau Gísla, Eyjólf, Láru Kristínu og Katrínu en fyrir átti Fía dótturina Guðrúnu.\r\n\r\nGísli á Hofsstöðum var mörgum að góðu kunnur, hæglátur og prúður. Hann rak sauðfjárbú á Hofsstöðum en á landsvísu er hann ásamt Fíu eiginkonu sinni þekktastur fyrir ræktun grárra glæsihrossa; viljugra og ganggóðra sem eftir var tekið. Gáski frá Hofsstöðum er þekktastur þeirra hrossa sem frá Hofsstöðum eru ættuð, sem og Gustur frá Hóli og Haukur Gáskasynir. Heimilisfólkið á Hofsstöðum hefur alla tíð haft óbilandi áhuga á hrossum og gott innsæi í þjálfun og ræktun gráu hrossanna allra og er þá sama hvort farið er aftur til tíma Höskuldar bónda, sem sagður var frægastur reiðmanna á Íslandi á liðinni öld, eða til sona þeirra Fíu og Gísla og síðar afkomenda þeirra sem haldið hafa merkjum ræktunar- og tamningastarfs á lofti.\r\n\r\nGísli Höskuldsson verður jarðsunginn laugardaginn 18. desember frá Reykholtskirkju og hefst athöfnin kl. 14:00. Streymt verður frá athöfninni á Snorrastofa.is\r\n\r\n[caption id=\"attachment_49614\" align=\"alignnone\" width=\"300\"]<img class=\"wp-image-49614 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/12/Gisli-a-Hofsstodum-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"200\" /> Kristfríður og Gísli fyrir um tveimur árum heima í eldhúsi á Uppsölum. Ljósm. mm.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Gísli Höskuldsson látinn - Skessuhorn