Búsetukjarninn við Ólafsbraut 62-64. Ljósm. af.

Vígsludagur búsetukjarna í Ólafsvík

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær var nýr búsetukjarni vígður við hátíðlega athöfn í Ólafsvík. Sveinn Þór Elinbergsson forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga segir í samtali við Skessuhorn að þjónustuíbúðakjarninn sé í nýrri byggingu við Ólafsbraut 62-64. Húsið er 441 fermetri að stærð og þar eru fimm einstaklingsíbúðir þar sem fatlaðir einstaklingar munu búa í sjálfstæðri búsetu með stuðningi FSS. Auk þess er starfsmannarými og sólskáli ásamt bílastæði og fullgerðri lóð. Verönd er fyrir framan hverja íbúð. Sveinn segir ennfremur að bygging hússins sé fjármögnuð af eigið fé félagsþjónustunnar, með stofnframlögum sveitarfélaganna á Snæfellsnesi, stuðningi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Jöfnunarsjóði sveitarfélaga ásamt lántöku FSS hjá Lánasjóði sveitarfélaga.\r\n\r\n„Tilkoma byggingarinnar og stuðningur við sjálfstæða búsetu fatlaðs fólks til aukinna lífsgæða og þátttöku í samfélaginu er mikið framfaraspor og stærsti áfangi uppbyggingar þjónustunnar hér á Snæfellsnesi en á síðastliðnum árum hefur FSS byggt upp dagþjónustu- og hæfingarstöðvarnar Ásbyrgi í Stykkishólmi og Smiðjuna í Ólafsvík. Við yfirtöku sveitarfélaga á málaflokki fatlaðs fólks frá ríkinu í ársbyrjun 2012 var enga slíka þjónustuþætti utan ráðgjafar að finna hér á Snæfellsnesi. Við þau tímamót settu sveitarfélögin fimm hér á Snæfellsnesi metnaðarfulla stefnu um uppbyggingu þjónustuþátta málaflokksins og byggðasamlagi sveitarfélaganna. Félags- og skólaþjónustunni var falin uppbyggingin og framkvæmd þjónustu í málaflokknum,“ segir Sveinn. „Þessi þjónustuaukning og markmiðin sem að baki hennar stendur er því merkur áfangi í búsetuskilyrðum hér á Snæfellsnesi,“ bætir hann við.\r\n\r\nStefnt er að því að ljúka megi öllum nauðsynlegum undirbúningi starfseminnar og fjármögnun þeirra fyrir áramót svo hefja megi þjónustuna fljótlega á nýju ári. „Þegar hefur verið auglýst eftir starfsfólki en um er að ræða sólarhringsþjónustu og verður þetta vaktavinnustaðar. „Jón Haukur Hilmarsson, þroskaþjálfi FSS, hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns ásamt því að gegna áfram starfi fagstjóra þjónustuþátta málaflokksins hér á Snæfellsnesi,“ segir Sveinn að endingu.",
  "innerBlocks": []
}
Vígsludagur búsetukjarna í Ólafsvík - Skessuhorn