
Vinningstillaga Fasteflis ehf.
Komin tilboð í byggingarrétt á 115 íbúðum á Sementsreit
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Komin eru tilboð í byggingarétt á allt að 115 íbúðum á 6 lóðum á Sementsreit. Eftir er að úthluta um 300 íbúðum til viðbótar á svæðinu, sbr. gildandi skipulag. Á vef Akraneskaupstaðar er fjallað um tilboðin sem bárust og niðurstöður matsnefndar.\r\n\r\nTilboðin í byggingarréttinn og stigin sem tilboðin hlutu:\r\n\r\nBjóðendur Stig\r\n\r\nBryggja 2 ehf. 25,5\r\n\r\nFerrum fasteignir ehf 62,3\r\n\r\nHúsvirki ehf 67,2\r\n\r\nFastefli ehf 97,0\r\n\r\nTillögurnar eru fjölbreyttar en hæsta einkunn sem hægt var að fá var 100 stig. Fastefli skoraði 37 stig af 40 mögulegum í útliti og gæðum og 60 stig af 60 mögulegum í byggingaréttargjaldi. Tilboð þeirra í byggingarétt var kr. 801.765.000. Lágmarks heimilað tilboð var hins vegar kr. 402.750.000.\r\n\r\nUmsögn matsnefndar um vinningstillögu er eftirfarandi:\r\n\r\n„Tillagan er fallega unnin, spennandi og gefur góð fyrirheit um áframhaldandi byggð á Sementsreit. Framsetningin er góð. Vel er unnið með staðaranda og leitast við að tengja útlit við byggð í bænum. Uppbrot og efnisnotkun er skemmtileg með tilvísanir í nærumhverfi og þekktar byggingar. Kennileiti mættu vera meira afgerandi. Lóðin er áhugaverð og lífleg. Útgangur úr bílakjallara í miðjan garð virkjar lóðina og örvar samfélagsleg tengsl. Jákvætt er að bílakjallari sé ekki undir allri lóð og „jarðsamband“ náist í miðjum garði þar sem að hægt er að koma fyrir stórum trjám. Blágrænar ofanvatnslausnir á lóð og Svansvottun er jákvætt. Hugmynd að blöndun á sérbýli og fjölbýli með mismunandi húsgerðum gengur vel upp og gæði íbúða er góð.“\r\n\r\nÍ ljósi ofangreindra tilboða og þess að allar lóðir fóru út við Suðurgötu, horfir Akraneskaupstaður björtum augum til uppbyggingar á Sementsreit og hlakkar til samstarfs með þeim verktökum sem munu byggja upp reitinn.\r\n\r\nMeðfylgjandi eru síðan tillögur þeirra bjóðenda sem buðu í byggingarréttinn:\r\n\r\n<a href=\"https://www.akranes.is/static/files/5.Skipulag/Sementsreitur/a2-kynning-sementsreitur_888722_reduce.pdf\">Fastefli ehf. – Vinningstillaga</a>\r\n\r\n<a href=\"https://www.akranes.is/static/files/5.Skipulag/Sementsreitur/160390.pdf\">Bryggja 2 ehf.</a>\r\n\r\n<a href=\"https://www.akranes.is/static/files/5.Skipulag/Sementsreitur/sementsreitur_reitir-c-og-d_tillogur_172306.pdf\">Ferrum Fasteignir ehf.</a>\r\n\r\n<a href=\"https://www.akranes.is/static/files/5.Skipulag/Sementsreitur/sjogardurinn-tillaga-300300_teikningar-a2.pdf\">Húsvirki hf.</a>",
"innerBlocks": []
}