Svæðið milli efra og neðra Jörundarholts þar sem áformað var að reisa nýjan íbúðakjarna fyrir fatlaða.

Fallið frá uppbyggingu íbúðakjarna í Jörundarholti

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Bæjarstjórn Akraness hefur fallið frá áformum um byggingu íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Jörundarholti á Akranesi. Íbúðakjarnanum var ætlaður staður á svæði á milli efra og neðra Jörundarholts sem í dag er óbyggt en nýtt af íbúum undir útivist, knattspyrnuiðkun og fleira. Þar eru grasflatir, lítið leiksvæði, spennistöð og göngustígur.\r\n\r\nÓhætt er að segja að áformin um íbúðakjarnann hafi vakið hörð viðbrögð þegar þau voru kynnt. Bent var á að húsið væri stórt og að mikið ónæði og rask myndi hljótast af framkvæmdunum. Bæjarstjórn hefur einsett sér það verkefni að finna kjarnanum nýja staðsetningu í sátt við samfélagið og þá sem málið varðar.",
  "innerBlocks": []
}
Fallið frá uppbyggingu íbúðakjarna í Jörundarholti - Skessuhorn