Fréttir

true

Makalausi dagurinn markaði upphaf jólavertíðarinnar hjá Póstinum

Stóru netverslunardagarnir makalausi dagurinn (e. Singles‘ Day), svarti föstudaginn, (e. Black Friday) og stafrænn mánudagur (e. Cyber Monday) eru að festa sig rækilega í sessi hjá Íslendingum sé tekið mið af reynslu starfsmanna Íslandspósts. „Makalausi dagurinn, sem varð alþjóðlegt fyrirbæri fyrir tilstilli kínverska verslunarrisans Alibaba, er orðinn alstærsti dagur ársins í netverslun og markar hann…Lesa meira

true

Umhverfisvottun þrettán ár í röð

Sveitarfélögin á Snæfellsnesi fagna nú EarthCheck umhverfisvottun 13. árið í röð en þau fengu fyrst vottun frá vottunarsamtökunum árið 2008, fyrst allra samfélaga í Evrópu. Í tilkynningu á vef Stykkishólmsbæjar segir að með samtakamætti á Snæfellsnesi fyrir nær tveimur áratugum hafi sveitarfélögin á Snæfellsnesi hafið ferli til að fá umhverfisvottun, eitt af þeim skrefum sem…Lesa meira

true

Snæfellsstúlkur töpuðu naumlega gegn Vestra

Snæfellsstúlkur fóru í langferð um helgina til Ísafjarðar þegar þær léku gegn liði Vestra á laugardaginn í 1. deild kvenna í körfuknattleik. Fyrir leikinn var Vestri án sigurs í deildinni eftir fimm leiki á meðan Snæfell hafði unnið tvo og tapað tveimur. Snæfell byrjaði leikinn af fullum krafti, leiddi 11:25 eftir fyrsta leikhluta og mestur…Lesa meira

true

Íbúar hafa aldrei kynnst öðrum eins eldingum og skruggum

Á níunda tímanum í gærkvöldi sló út rafmagni á Snæfellsnesi og nokkrum bæjum á Mýrunum. Rafmagn blikkaði víðar og m.a. á Akranesi sló út viðkvæmum raftækjum. Ástæða bilunarinnar var sú að gríðar öflugri eldingu sló niður í staurasamstæðu á túni skammt frá Álftártungu á Mýrum. Eldingunni fylgdu þrumur svo undir kvað á nágrannabæjum. Svanhildur Svansdóttir…Lesa meira

true

Þó nokkurt tjón er þak fauk í Grundarfirði

Töluvert hvassviðri var á Snæfellsnesi í nótt. Í einni hviðunni fauk stór hluti af þakinu á fiskverkun Soffaníasar Cecilssonar hf í Grundarfirði. Þakplötur fuku niður að höfn og ollu miklu tjóni á hafnarvog Grundarfjarðarhafnar og nokkrum bílaleigubílum sem voru staðsettir á planinu þar. Hviðan stóra kom rétt rúmlega klukkan hálf fimm í nótt og sem…Lesa meira

true

Fækkar um 30 með Covid-19 á Vesturlandi

Verulega fækkar í hópi þeirra sem sitja í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi. Mestu munar um að 29 manns á Akranesi eru nú lausir úr prísundinni frá því í gær, sunnudag. Samkvæmt nýrri samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi eru nú 93 í einangrun og 99 í sóttkví í landshlutanum. Á Akranesi er nú 71 í einangrun…Lesa meira

true

Vefsíðan Snæfellingar opnuð

Vefsíðan snaefellingar.is var opnuð í dag. Vefsíðan heldur utan um upplýsingar um sameiningarviðræður Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar. Vinnuheiti verkefnisins er „Snæfellingar“. Á síðunni má finna fréttir, upplýsingar um verkefnið og hægt er að senda fyrirspurnir á samstarfsnefndina. Annað kvöld fer fram samráðsfundur með íbúum sveitarfélaganna þar sem þeim gefst tækifæri til að koma sínum…Lesa meira

true

Smáframleiðendur fengu góðar viðtökur á Vesturlandi

Um helgina var innréttuðum sendibíl ekið um Vesturland þar sem smáframleiðendur í landshlutanum buðu ýmis matvæli til sölu. Fyrri daginn var ekið um Snæfellsnes, en þann síðari um Dali, Borgarfjörð og endað á Akranesi undir kvöld í gær. Þessi ferð hafði skamman aðdraganda en brugðið var á þetta ráð sökum þess að fella varð út…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu gegn Sindra – Vesturlandsslagur á morgun

Skagamenn leita enn að sínum fyrsta sigri í 1. deild karla í körfuknattleik en liðið lék gegn Sindra frá Höfn í Hornafirði síðasta föstudagskvöld. Leikurinn fór fram á Akranesi og gestirnir byrjuðu af krafti, komust í 5:13 en Skagamenn komu til baka síðar í leikhlutanum og munurinn aðeins þrjú stig þegar flautan gall, 17:20. Annar…Lesa meira

true

Rafmagnslaust um tíma í dag í Lundarreykjadal

Í dag klukkan 13-16 verður rafmagnslaust frá Fossatúni að Þverfelli í Lundarreykjadal vegna vinnu við dreifikerfi Rarik. Í tilkynningu frá Rarik kemur fram að mögulega verði rafmagn sett á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt Rarik Vesturlandi í síma 528 9390.Lesa meira