
Hlédís ávarpar gesti á Akranesi en fjær í bílnum er Jóhanna B Þorvaldsdóttir á Háafelli. Ljósm. mm
Smáframleiðendur fengu góðar viðtökur á Vesturlandi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Um helgina var innréttuðum sendibíl ekið um Vesturland þar sem smáframleiðendur í landshlutanum buðu ýmis matvæli til sölu. Fyrri daginn var ekið um Snæfellsnes, en þann síðari um Dali, Borgarfjörð og endað á Akranesi undir kvöld í gær. Þessi ferð hafði skamman aðdraganda en brugðið var á þetta ráð sökum þess að fella varð út viðburð síðastliðinn laugardag þar sem slá átti upp matarmarkaði á Hvanneyri. Að sögn Hlédísar Sveinsdóttur, sem skipulagði viðburðinn ásamt smáframleiðendum og starfsfólki SSV, gekk salan vel og talsvert betur en almennt hafði verið búist við. Margt af því sem í boði var seldist upp. Hlédís segir að nú sé í skoðun hvort, hvenær og hvernig leikurinn verði endurtekinn. Bíllinn sem notaður var við söluna um helgina er falur til leigu en hann er í eigu Skagfirðinga sem stundað hafa farandsölu af þessu tagi um nokkurt skeið.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_48831\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-48831 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Smaframleidendur-fengu-godar-vidtokur-a-Vesturlandi_2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Næstsíðasti viðkomustaðurinn í gær var á Laxárbakka. Ljósm. hs.[/caption]",
"innerBlocks": []
}