Þó nokkurt tjón er þak fauk í Grundarfirði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Töluvert hvassviðri var á Snæfellsnesi í nótt. Í einni hviðunni fauk stór hluti af þakinu á fiskverkun Soffaníasar Cecilssonar hf í Grundarfirði. Þakplötur fuku niður að höfn og ollu miklu tjóni á hafnarvog Grundarfjarðarhafnar og nokkrum bílaleigubílum sem voru staðsettir á planinu þar. Hviðan stóra kom rétt rúmlega klukkan hálf fimm í nótt og sem betur fer var enginn á ferli. Strax í morgun var hafist handa við að gera við þakið og voru iðnaðarmenn að störfum þegar fréttaritari Skessuhorns var á ferðinni eftir hádegið í dag.\r\n\r\n[gallery ids=\"48838,48839,48840,48841\"]",
  "innerBlocks": []
}
Þó nokkurt tjón er þak fauk í Grundarfirði - Skessuhorn