
Í gærkvöldi sló eldingu niður í mannvirki dreifikerfis rafmagns á Snæfellsnesi með þeim afleiðingum að straumlaust varð. Samkvæmt vef Rarik varð bilunin um klukkan 20 en viðgerð lauk um miðnætti.Lesa meira

Í gærkvöldi sló eldingu niður í mannvirki dreifikerfis rafmagns á Snæfellsnesi með þeim afleiðingum að straumlaust varð. Samkvæmt vef Rarik varð bilunin um klukkan 20 en viðgerð lauk um miðnætti.Lesa meira

Mikil ótíð hefur að undanförnu gert erfitt fyrir með að sækja sjó á bátum frá Snæfellsbæ og hafa þeir því meira og minna verið bundnir við bryggju það sem af er hausti. En þó hefur í dag og dag verið hægt að skjótast út til veiða þegar hlé hefur gert. Afli hefur verið góður þegar…Lesa meira

Þorleifur Geirsson í Borgarnesi er nú búinn að gefa út sitt tólfta Borgarness dagatal, en um er að ræða veggdagatal með þrettán myndum frá Borgarnesi. Myndirnar eru teknar í öllum mánuðum ársins. Hægt er að skoða þær og fá allar nánari upplýsingar á slóðinni: www.hvitatravel.is/dagatal, en það er selt hjá útgefanda og í Olís í…Lesa meira

Sundfélag Akraness sendi vaska sveit á Íslandsmeistaramótið í 25 metra laug í sundi sem fram fór í Ásvallalaug um helgina. Árangur unga fólksins frá Akranesi var góður, eða ein silfurverðlaun, fern bronsverðlaun, fjögur Akranesmet og lágmörk í unglingalandslið. Enrique Snær Llorenz vann silfur í 200m fjórsundi á tímanum 2.07.48 sem er sömuleiðis nýtt Akranesmet. Gamla…Lesa meira

Skagastúlkur voru sigursælar á Íslandsmeistaramótinu í klifri sem fram fór um liðna helgi í Klifurhúsinu í Reykjavík. Keppt var í grjótglímu (e. bouldering) en mótið var fjórða og síðasta mót Íslandsmeistaramótaraðarinnar fyrir árið 2021. Skagamenn voru fjölmennir en tólf klifrarar mættu til leiks fyrir ÍA. Í C- flokki sigraði Þórkatla Þyrí Sturludóttir örugglega með því…Lesa meira

Nú eru 123 í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi, samkvæmt samantekt lögreglu, 33 færri en í gær. Í sóttkví í landshlutanum eru 111. Mest munar um fækkun í einangrun á Akranesi þar sem 100 eru nú í einangrun og 84 í sóttkví. Í Borgarnesi eru tíu í einangrun og annar eins fjöldi í Grundarfirði. Loks…Lesa meira

Í gær voru 135 greindir með Covid-19 á landinu öllu, heldur lægri tala en alla daga vikunnar þar á undan. Samkvæmt nýrri samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi yfir fjölda smitaðra og í sóttkví í landshlutanum, fækkar um 18 í einangrun milli daga. Nú eru þeir 156 , voru 174 í gær. Í sóttkví er 121. Á…Lesa meira

Skallagrímur tók á móti Selfossi í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímur náði sínum fyrsta sigri í deildinni gegn Hrunamönnum á dögunum en tapaði síðan gegn liði Hattar frá Egilsstöðum síðasta mánudag. Selfyssingar höfðu fyrir þennan leik unnið fjóra leiki og tapað þremur í deildinni og því sigurstranglegri fyrir fram í leiknum. Skallagrímsmenn…Lesa meira

Dúllurnar er hópur handverkskvenna á Akranesi sem hefur um árabil komið saman og átt dúllustundir á Bókasafni Akraness. Nýverið afhentu dúllurnar bókasafninu glæsilegt jólatré þar sem fjöldi heklaðra dúlla prýðir trégrind sem hefur form jólatrés. Tréð verður framvegis uppi á aðventunni til yndisauka fyrir gesti. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem dúllurnar láta þannig…Lesa meira

Vegagerðin varar við því að í dag er útlit fyrir snarpar vindhviður, 35-40 m/s á Kjalarnesi, og við Hafnarfjall frá um klukkan 12 til 17, en lægir þá heldur. Aftur er svo spáð hvassviðri snemma í nótt með sunnanátt. Þá verður víða hvasst á Snæfellsnesi og norðanlands.Lesa meira