
Hjörtur Sigurðsson skipstjóri á línubátnum Kviku SH ásamt Andra Jóhannessyni að landa sjö tonnum eftir daginn. Ljósm. af.
Erfið tíð fyrir bátana sem gerðir eru út frá Snæfellsbæ
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Mikil ótíð hefur að undanförnu gert erfitt fyrir með að sækja sjó á bátum frá Snæfellsbæ og hafa þeir því meira og minna verið bundnir við bryggju það sem af er hausti. En þó hefur í dag og dag verið hægt að skjótast út til veiða þegar hlé hefur gert. Afli hefur verið góður þegar gefið hefur og dragnótarbátar gert góða túra. Nokkrir hafa farið til veiða á Vestfjarðamiðum. Línubátar hafa fiskað vel, allt að 200 kílóum á bala, og handfærabátar gert ágætis róðra á grunnslóð sem er fremur fátítt á þessum árstíma.",
"innerBlocks": []
}