Hér má sjá eina af staurasamstæðunum sem skemmdust í gærkvöldi. Ljósm. aðsend.

Íbúar hafa aldrei kynnst öðrum eins eldingum og skruggum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á níunda tímanum í gærkvöldi sló út rafmagni á Snæfellsnesi og nokkrum bæjum á Mýrunum. Rafmagn blikkaði víðar og m.a. á Akranesi sló út viðkvæmum raftækjum. Ástæða bilunarinnar var sú að gríðar öflugri eldingu sló niður í staurasamstæðu á túni skammt frá Álftártungu á Mýrum. Eldingunni fylgdu þrumur svo undir kvað á nágrannabæjum. Svanhildur Svansdóttir í Álftártungu kveðst hafa orðið vitni að eldingunni. Hún segir að henni hafi slegið niður í staurasamstæðu um tvo kílómetra frá heimili hennar. „Ég var stödd inni í eldhúsi þegar eldingunni sló niður. Henni fylgdi svakalegur bjarmi og það var eins og maður fengi straum í gagnaugað. Erfitt að lýsa þessu. Þessu fylgdi svo miklar þrumur sem maður hélt að ætluðu aldrei að hætta. Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei á ævinni orðið eins hrædd. Er heldur ekki týpan sem líkar sprengingar á gamlárskvöld, en hvað þá svona læti,“ segir Svanhildur. Hún segir að Svanur faðir hennar hafi heldur aldrei upplifað neitt þessu líkt áður og í sama streng taka fleiri nágrannar þeirra. Blossinn þegar eldingunni sló niður var svo mikill að kona sem var á akstri á Akrafjallsvegi sagði að engu hefði verið líkara en Mýrarnar stæðu í ljósum logum.\r\n\r\nEldingunni sló niður í rafmagnsstæðum og ljóst að þrjár þeirra hafa skemmst. Þverbitar í þeim kubbuðust í sundur og trjáflísar dreifðust í allt að hundrað metra frá staurunum. Ekki er vitað um annað tjón, utan þess að kindur hafa fundist dauðar skammt frá þessum stað. Síðar um kvöldið tókst að koma rafmagni á að nýju á Snæfellsnesi en tveir bæir á Mýrum fá enn rafmagn með díselrafstöðvum. Fullnaðarviðgerð á staurasamstæðunni á eftir að fara fram.",
  "innerBlocks": []
}
Íbúar hafa aldrei kynnst öðrum eins eldingum og skruggum - Skessuhorn