Fréttir

true

Snæfellsstúlkur sigruðu Stjörnuna

Snæfell tók á móti Stjörnunni í 1. deild kvenna í körfuknattleik í Stykkishólmi í gærkvöldi. Heimastúlkur byrjuðu af miklum krafti og voru komnar í 9:1 eftir rúmlega þriggja mínútna leik. Stjörnustúlkur gáfust þó ekki upp við þetta áhlaup, náðu að halda í við Snæfell og munurinn aðeins þrjú stig eftir fyrsta leikhluta, 19:16.  Í öðrum…Lesa meira

true

Samþætt leiðakerfi í Borgarbyggð

Í næstu viku hefst formlega tilraunarverkefni í almenningssamgöngum í Borgarbyggð sem ber heitið „Samþætt leiðakerfi.“ Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hlutu 12 milljóna styrk, sem deilist á tvö ár, frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu til að hrynda verkefninu í framkvæmd. Tilraunaverkefni þetta er samstarfsverkefni Borgarbyggðar, SSV, Menntaskóla Borgarfjarðar og Vegagerðarinnar. Til að gera verkefnið framkvæmanlegt þurfti Borgarbyggð…Lesa meira

true

Kosið verður um sameiningu tveggja sveitarfélaga á nýju ári

Hafnar eru sameiningarviðræður Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar, með það fyrir augum að íbúar kjósi um tillöguna í febrúar á næsta ári. Samstarfsnefnd sveitarfélaganna er skipuð fjórum fulltrúum, en með nefndinni starfa bæjarstjóri Snæfellsbæjar og bæjarritari. Vinnuheiti verkefnisins er „Snæfellingar“ og verður vefsíðan snaefellingar.is opnuð innan tíðar. Fulltrúar í samstarfsnefnd eru Júníana Björg Óttarsdóttir og…Lesa meira

true

Bikarúrslit á laugardaginn

Skagamenn leika úrslitaleik gegn Víkingi Reykjavík í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu næsta laugardag. Spilað verður á Laugardalsvelli og hefst leikurinn stundvíslega klukkan 15. Knattspyrnufélag ÍA og stuðningsmenn hvetja Skagamenn og aðra til að fjölmenna á völlinn, mæta gulir og glaðir og styðja sitt lið til sigurs. Nánar um ferðir á leikinn og upphitun má sjá…Lesa meira

Alþjóðlegi sjónverndardagurinn er á morgun

Alþjóðlegi sjónverndardagurinn er annar fimmtudagur í október ár hvert, nú 14. október. Tilgangur dagsins er að beina athygli almennings út um allan heim að blindu og sjónskerðingu, endurhæfingu blindra og sjónskertra og vörnum gegn sjónmissi. Alls eru um 1800 manns skráðir með blindu eða sjónskerðingu hér á landi í þjónustu hjá Sjónstöðinni og fer sá…Lesa meira

true

Grænn og gönguvænn Grundarfjörður

Í Grundarfirði er unnið að umfangsmiklum gatna- og stígaframkvæmdum þar sem áherslan er lögð á að gera bæinn gönguvænni. „Við eigum mikið af gangstéttum sem þarf að endurnýja og í stað þess að fara í hefðbundnar endurbætur á einstökum stöðum þá tókum við þær til skoðunar í stærra samhengi og spurðum hvernig við gætum gert…Lesa meira

true

Endurgerir leiktæki á Bjössaróló

Löngum hefur verið sagt að Bjössaróló í Borgarnesi sé best geymda leyndarmál bæjarins. Skessuhorn leggur sitt af mörkum til að gera sem minnst úr því, enda er völlurinn einstakur og sú saga sem hann hefur að geyma þess virði að sem flestir kunni á henni skil. Ríkharður Mýrdal Harðarson hefur tengingu við Björn heitinn Guðmundsson…Lesa meira

true

Silja Mist markaðsstjóri Orku náttúrunnar

Silja Mist Sigurkarlsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Orku náttúrunnar og markaðssérfræðingur Orkuveitu Reykjavíkur. Hún kemur til fyrirtækisins frá Nóa Síríus þar sem hún hefur gegnt stöðu markaðsstjóra síðustu ár. Silja verður hluti af einingu innan OR sem kallast Samskipti og samfélag en sú eining sér um öll markaðs- og kynningarmál OR samstæðunnar. Silja sem fædd…Lesa meira

true

Rannsókn lokið á banaslysi við Heydalsveg

Rannsóknanefnd samgönguslysa hefur lokið rannsókn og skýrslugerð vegna umferðarslyss sem varð á Heydalsvegi á Snæfellsnesi aðfararnótt 4. október 2020. 57 ára karlmaður lést í slysinu, en kona sem var með honum í bílnum komst lífs af. Niðurstaða áfengis- og lyfjarannsókna á báðum einstaklingunum sýndi að þeir voru báðir undir áhrifum áfengis. Konan mundi ekki hvort…Lesa meira

true

Kanna hug íbúa til eflingar byggð og samfélags

Starfshópur um eflingu atvinnulífs í Stykkishólmi stendur nú fyrir stuttri skoðanakönnun á vef bæjarfélagsins með það að leiðarljósi að efla samfélag og byggð í Stykkishólmi. Markmiðið er að kanna hver hugur fólks er með næstu skref í atvinnumálum bæjarins og kalla fram ábendingar Stykkishólmi til framdráttar. „Markmið þetta er í samræmi við erindisbréf starfshópsins um…Lesa meira