{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Silja Mist Sigurkarlsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Orku náttúrunnar og markaðssérfræðingur Orkuveitu Reykjavíkur. Hún kemur til fyrirtækisins frá Nóa Síríus þar sem hún hefur gegnt stöðu markaðsstjóra síðustu ár. Silja verður hluti af einingu innan OR sem kallast Samskipti og samfélag en sú eining sér um öll markaðs- og kynningarmál OR samstæðunnar.\r\n\r\nSilja sem fædd er árið 1991 hóf störf hjá Nóa Síríus árið 2016 eftir að hún lauk námi í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík, fyrst sem vöruþróunarstjóri og síðar sem markaðsstjóri. Silja hefur meðfram vinnu sinni sinnt kennslu í markaðsfræðum og vöruþróun við Háskólann í Reykjavík.\r\n\r\n„Síðustu sex ár hafa verið mögnuð reynsla fyrir mig sem mun klárlega hjálpa mér í að takast á við þær áskoranir sem fram undan eru hjá Orku náttúrunnar. Á raforkumarkaði ríkir afar spennandi samkeppnisumhverfi sem ég er spennt að takast á við með umhverfismálin sem ég brenn svo fyrir að leiðarljósi. Það er klárt mál að þegar kemur að orkuskiptunum eru áskoranirnar stórar og ég get ekki beðið eftir því að takast á við þær með því frábæra fólki sem ég veit að starfar hjá Orku náttúrunnar,“ segir Silja Mist í tilkynningu frá ON.",
"innerBlocks": []
}
Silja Mist markaðsstjóri Orku náttúrunnar - Skessuhorn