{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Alþjóðlegi sjónverndardagurinn er annar fimmtudagur í október ár hvert, nú 14. október. Tilgangur dagsins er að beina athygli almennings út um allan heim að blindu og sjónskerðingu, endurhæfingu blindra og sjónskertra og vörnum gegn sjónmissi. Alls eru um 1800 manns skráðir með blindu eða sjónskerðingu hér á landi í þjónustu hjá Sjónstöðinni og fer sá hópur stækkandi vegna hækkandi lífaldurs. „Mikilvægt er að almenningur geri sér grein fyrir þeim björgum sem standa til boða og þeim hjálpartækjum sem eru í boði þegar fólk er að missa sjón,“ segir í tilkynningu frá Blindrafélaginu.\r\n\r\nÍ tilefni dagsins munu Blindrafélagið og Þjónustu- og þekkingarmiðstöð, öðru nafni nefnd Sjónstöðin, efna til opins húss og samkomu þar sem viðurkenningar verða veittar og mikilvægar samstarfsyfirlýsingar undirritaðar. „Dagskráin hefst með vöru- og hjálpartækjasýningu sem stendur frá klukkan 13:00 til 15:00. Klukkan 15:00 hefst svo formleg dagskrá þar sem undirrituð verður samstarfsyfirlýsing milli Lions og Blindrafélagsins um að sala á Rauðu Fjöðrinni 2022 verði til styrktar Leiðsöguhundaverkefnis Blindrafélagsins. Nýir leiðsöguhundar verða kynntir og munu Már Gunnarsson og Svanhildur Anna Sveinsdóttir segja frá reynslu sinni að fá leiðsöguhund. Björk Arnardóttir leiðsöguhundaþjálfi hjá Sjónstöðinni mun segja frá leiðsöguhundaverkefninu sem er samstarf Blindrafélagsins og Sjónstöðvarinnar. Einnig verður undirritaður samningur erfða- og sameindalæknisfræðideildar Landspítala og Blindrafélagsins um uppsetningu á nýrri greiningartækni til að finna sjúkdómsvaldandi breytingar í genum sem valda arfgengum hrörnunarsjúkdómum í sjónhimnu.“\r\n\r\n<strong>Blindravinnustofan 80 ára</strong>\r\n\r\nUm þessar mundir eru liðin 80 ár frá því að Blindravinnustofan hóf starfsemi, en hún var stofnuð í þeim tilgangi að veita blindum einstaklingum atvinnu. Þó svo mikið hafi breyst þá eiga blindir og sjónskertir einstaklingar enn í vandræðum með að fá atvinnutækifæri. Í tilefni þessara tímamóta þá mun starfsfólk Blindravinnustofunnar veita sérstakan þakklætisvott fyrir verðmætt framlag til atvinnuþátttöku fatlaðs fólks.\r\n\r\n<strong>Stuðningur til sjálfstæðis!</strong>\r\n\r\nBlindravinnustofan er vinnu- og starfsþjálfunarstaður blindra, sjónskertra og annarra fatlaðra einstaklinga. Blindravinnustofan gegnir mikilvægu hlutverki í því að skapa blindu, sjónskertu og öðru fötluðu fólki atvinnu og starfa þar um 30 fatlaðir einstaklingar. Mikilvægasti hluti starfseminnar er pökkun á hreinlætisvörum sem seldar eru undir merkjum Blindravinnustofunnar. Tilvist Blindravinnustofunnar hvílir því á vilja verslana til að bjóða vörur vinnustofunnar til sölu og vilja neytenda til að kaupa vörurnar. Önnur verkefni vinnustofunnar eru: Framleiðsla, bastleikfangavöggugerð, ljósmyndaskönnun, merkingar á pennum og öðrum smávörum, pökkun og flokkun og strimlakústagerð.\r\n\r\nÍ gildi er þjónustusamningur við Vinnumálastofnun um hlutverk Blindravinnustofunnar sem verndaðs vinnu-, starfsþjálfunar- og hæfingarstaðar. Blindravinnustofan var stofnuð, af blindu fólki, árið 1941. Í dag er Blindravinnustofan einkahlutafélag að fullu í eigu Blindrafélagsins. Tilgangur félagsins er að veita blindum og sjónskertum atvinnu, þjálfun og endurhæfingu með rekstri heildsölu, innflutningi, smásölu og framleiðslu ræstinga- og hreinlætisvara og skyldri starfsemi.\r\n\r\nMeð því að kaupa vörur eða þjónustu Blindravinnustofunnar leggur þú þitt af mörkum til þess að styðja blint og sjónskert fólk til sjálfstæðis.\r\n\r\nFleiri upplýsingar um Blindrafélagið og viðburði er að finna á www.blind.is",
"innerBlocks": []
}
Alþjóðlegi sjónverndardagurinn er á morgun - Skessuhorn