
Við nýju leiktækin. F.v. Aleta Von Mýrdal Ríkharðsdóttir, Ríkharður Mýrdal Harðarson og Amanda Nótt Mýrdal Ríkharðsdóttir. Ljósm. glh.
Endurgerir leiktæki á Bjössaróló
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Löngum hefur verið sagt að Bjössaróló í Borgarnesi sé best geymda leyndarmál bæjarins. Skessuhorn leggur sitt af mörkum til að gera sem minnst úr því, enda er völlurinn einstakur og sú saga sem hann hefur að geyma þess virði að sem flestir kunni á henni skil. Ríkharður Mýrdal Harðarson hefur tengingu við Björn heitinn Guðmundsson sem upphaflega byggði Bjössaróló. Gamli maðurinn hafði endurnýtingu í huga. Það hefur Rikki einnig en í Skessuhorni sem kom út í dag er meðal annars sagt frá verkefni sem hann er nú með í höndunum og snýr að endurgerð gamalla leiktækja sem komið verður fyrir á Bjössaróló.",
"innerBlocks": []
}