Rannsókn lokið á banaslysi við Heydalsveg

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Rannsóknanefnd samgönguslysa hefur lokið rannsókn og skýrslugerð vegna umferðarslyss sem varð á Heydalsvegi á Snæfellsnesi aðfararnótt 4. október 2020. 57 ára karlmaður lést í slysinu, en kona sem var með honum í bílnum komst lífs af. Niðurstaða áfengis- og lyfjarannsókna á báðum einstaklingunum sýndi að þeir voru báðir undir áhrifum áfengis. Konan mundi ekki hvort hafði ekið bifreiðinni þegar slysið varð.\r\n\r\nUm atvikið segir í skýrslunni: „Myrkur var úti og milt veður. Ummerki voru á vettvangi um að bifreiðinni hafi verið ekið út af veginum handan við vegræsi við Haffjarðardalsgil. Bifreiðin fór niður vegfláa án þess að velta og stöðvaðist þar. Ekki voru ummerki á vettvangi um hraðakstur. Ökumaður reyndi síðan að aka bifreiðinni aftur upp á veginn. Ummerki voru um nokkrar tilraunir til þess sem enduðu með því að bíllinn endasteyptist niður í vegræsið. Bifreiðin steyptist fram fyrir sig, snerist og hafnaði á hvolfi í hyl neðan við vegræsið.“\r\n\r\nÞá segir í skýrslunni að farþegarými í bifreiðinni hafi nánast allt  verið undir vatnsyfirborðinu og loftrými eingöngu aftast í bifreiðinni. „Vegfarendur sem að slysinu komu, líklega um 30 mínútum eftir að slysið varð, náðu að losa báða aðilana út úr ökutækinu, en annar þeirra sýndi engin lífsmörk. Dánarorsök var drukknun. Hinn aðilinn var kaldur og hrakinn en man að sögn ekki eftir slysinu eða aðdraganda þess, þ.m.t. hvor aðilanna ók bifreiðinni. Engin vitni voru að slysinu,“ segir í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa.",
  "innerBlocks": []
}
Rannsókn lokið á banaslysi við Heydalsveg - Skessuhorn