Kosið verður um sameiningu tveggja sveitarfélaga á nýju ári

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hafnar eru sameiningarviðræður Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar, með það fyrir augum að íbúar kjósi um tillöguna í febrúar á næsta ári. Samstarfsnefnd sveitarfélaganna er skipuð fjórum fulltrúum, en með nefndinni starfa bæjarstjóri Snæfellsbæjar og bæjarritari. Vinnuheiti verkefnisins er „Snæfellingar“ og verður vefsíðan snaefellingar.is opnuð innan tíðar. Fulltrúar í samstarfsnefnd eru Júníana Björg Óttarsdóttir og Björn H Hilmarsson frá Snæfellsbæ en frá Eyja- og Miklaholtshreppi þeir Eggert Kjartansson oddviti og Atli Svansson hreppsnefndarmaður.\r\n\r\nSamstarfsnefnd hefur nú haldið þrjá fundi og fengið ráðgjafafyrirtækið RR ráðgjöf til aðstoðar við verkefnið, en RR ráðgjöf hefur sérhæft sig í verkefnisstjórn og ráðgjöf við sameiningarverkefni. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur samþykkt að veita verkefninu framlag sem stendur undir kostnaði við verkefnið og verða íbúar sveitarfélaganna því ekki fyrir beinum kostnaði. Samstarfsnefndin fundar vikulega þessi misserin og er góður gangur í verkefninu, að sögn Róberts Ragnarssonar hjá RR ráðgjöf. Segir hann að samþykki íbúar sveitarfélaganna sameiningu þeirra, sé markmiðið að sameiningin styrki byggð og skapi frekari sóknartækifæri fyrir samfélagið á sunnanverðu Snæfellsnesi.\r\n\r\n<strong>Samráð við skólastjórnendur</strong>\r\n\r\nSíðastliðinn mánudag komu skólastjórnendur Grunnskóla Snæfellsbæjar og Laugargerðisskóla á fund samstarfsnefndar um sameiningu Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar. Á fundinum var farið yfir stöðu leik- og grunnskólastarfs í Laugargerðisskóla og Lýsuhólsskóla, ásamt því að rætt var um fyrir tónlistarkennslu og sérfræðiþjónustu við skólana. Í Laugargerðisskóla eru ellefu grunnskólanemendur þetta skólaárið, en í Lýsuhólsskóla eru 17 nemendur í grunnskóla og sex nemendur í leikskóla. Lýsuhólsskóli er deild innan Grunnskóla Snæfellsbæjar sem eru með kennslustaði í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsuhóli.\r\n\r\n„Á fundinum á mánudaginn kom fram að í báðum skólum er gott og faglegt skólastarf sem leitt er áfram af samheldum og öflugum starfsmannahópi. Foreldrasamfélagið er mjög virkur bakhjarl og þátttakandi í skólastarfinu. Ein helsta áskorun skólanna er annars vegar fjöldi nemenda og hins vegar húsnæðismál. Ráðgjöfum var falið að draga saman stöðugreiningu og verður umræðu um skólamál haldið áfram á næstu vikum,“ segir Róbert Ragnarsson.",
  "innerBlocks": []
}
Kosið verður um sameiningu tveggja sveitarfélaga á nýju ári - Skessuhorn