
Þessa mynd sem Herborg Árnadóttir gerði sýnir hvernig gönguvænn Grundarfjörður gæti litið út.
Grænn og gönguvænn Grundarfjörður
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í Grundarfirði er unnið að umfangsmiklum gatna- og stígaframkvæmdum þar sem áherslan er lögð á að gera bæinn gönguvænni. „Við eigum mikið af gangstéttum sem þarf að endurnýja og í stað þess að fara í hefðbundnar endurbætur á einstökum stöðum þá tókum við þær til skoðunar í stærra samhengi og spurðum hvernig við gætum gert bæinn okkar enn gönguvænni og öruggari fyrir vegfarendur og umhverfið hlýlegra,“ segir Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grundarfirði í samtali við Skessuhorn. „Við reyndum að horfa til þess hvernig þarfir fólks myndu verða til framtíðar, því góðar gangstéttar eiga að endast í áratugi. Þetta verkefni á sér grunn í nýju aðalskipulagi bæjarins en þar erum við með nokkur markmið sem við fléttum hér saman í eitt. Í aðalskipulaginu er markmið sem heitir „Gönguvænn Grundarfjörður“ og gengur út á að það sé auðvelt að ganga um bæinn og út fyrir hann og að vegfarendur séu öruggir í umferðinni. Enn fremur eru markmið um að styrkja miðbæ, um aukinn gróður í bæjarumhverfinu, um „græn svæði“ og um það að meðhöndla regnvatn á nýjan hátt og létta á holræsakerfi bæjarins,“ segir Björg. „Við sáum að við þyrftum að horfa á margvíslegar þarfir samfélagsins til lengri framtíðar, við undirbúning framkvæmda, með hönnun gatna og stíga og aðliggjandi svæða.“\r\n\r\n<em>Nánar er rætt við Björgu bæjarstjóra í Grundarfirði í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}