
María Kristín Gylfadóttir hefur verið ráðin í nýtt starf verkefnastjóra vegna rannsóknaseturs skapandi greina við Háskólann á Bifröst. Rannsóknarsetrið var sett á fót í ágúst síðastliðnum. Í frétt á heimasíðu Háskólans á Bifröst er starfsferill Maríu rakinn. Þar segir að hún hafi starfað í meira en tvo áratugi við menntun, menningu, nýsköpun og rannsóknartengd verkefni.…Lesa meira








