Fréttir

true

Íbúum fjölgaði hlutfallslega mest í Helgafellssveit

Á tíu mánaða tímabili, frá 1. desember 2020, hefur íbúum á Vesturlandi fjölgað um 287, eða 1,7%. Á öllu landinu hefur íbúum fjölgað hlutfallslega mest í Helgafellssveit, en þar hefur fjölgað um 14 íbúa eða 21,5%. Þá fækkaði íbúum hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi, en þar fækkaði um 20 íbúa eða 16,7%. Íbúum hefur…Lesa meira

true

Framkvæmdir byrjaðar við Gufuskála

Framkvæmdir við tvo nýja grjótgarða vestan Gufuskála hófust í síðustu viku. Það er Grjótverk ehf. sem sér um verkið og eru þeir að leggja slóða þangað sem fyrri garðurinn byrjar, um er að ræða 55 og 58 metra langa garða með 55 metrum á milli. Einhverjar tafir hafa verið á að hægt væri að byrja…Lesa meira

true

Enn eru kærur að berast vegna endurtalningar

Lenya Rún Taha Karim, sem skipaði þriðja sæti á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður í kosningunum 25. september síðastliðnum, hefur skilað inn kæru til kjörbréfanefndar vegna endurtalningar í Norðvesturkjördæmi. En Lenya var inni sem þingmaður eftir að lokatölur voru birtar á sunnudagsmorgni 26. september, en datt út eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi. Hún er nú fjórði…Lesa meira

true

Klifurfélag ÍA stóð sig vel á Íslandsmeistaramótinu

Íslandsmeistaramótið #3 í klifri fór fram helgina 25. og 26. september hjá Klifurfélagi Reykjavíkur í Klifurhúsinu. Fjölmennur hópur frá Klifurfélagi ÍA tók þátt í mótinu en um var að ræða keppendur sem tóku þátt í B- og C flokki. Frá þessu segir á fésbókarsíðu klifurfélagsins en B flokkur félagsins hóf keppni á laugardeginum og voru…Lesa meira

true

Kærur halda áfram að berast

Undirbúningskjörbréfanefnd kom saman í annað sinn nú klukkan eitt í dag. Fulltrúar Landskjörstjórnar kynna á fundinum greinargerð stjórnarinnar frá fundi hennar í liðinni viku. Ljóst er að nefndarmenn undirbúningskjörbréfanefnd eiga verk fyrir höndum en fjórar kærur hafa borist vegna kosninganna 25. september síðastliðinn og fleiri kærur gætu enn borist. Eins og Skessuhorn hefur áður greint…Lesa meira

true

Grundaskóli á Akranesi fagnar 40 árum í dag

Grunnskólinn Grundaskóli á Akranesi er 40 ára í dag og því ærið tilefni til að fagna fyrir börn og starfsmenn skólans. Dagurinn byrjaði með skrúðgöngu þar sem eldri bekkir Grundaskóla skelltu sér í Akraneshöllina og fóru í hina ýmsu leiki. Yngri nemendur skólans gerðu svo slíkt hið sama eftir klukkan tíu í morgun. Blaðamaður Skessuhorns…Lesa meira

true

Lét drauminn um bestu vinnu í heimi rætast

„Ég hef horft á þættina Top Gear í örugglega tuttugu ár og lengi haldið því fram að þeir sem sjá um þá þætti séu í bestu vinnu í heimi. Ég áttaði mig á að ég yrði aldrei ráðinn í svona vinnu nema ég myndi búa hana til sjálfur,“ segir James Einar Becker sem nú hefur…Lesa meira

true

Landsæfing björgunarsveita Landsbjargar var um helgina

Slysavarnafélagið Landsbjörg hélt landsæfingu björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu á laugardaginn. Þar kom björgunarsveitafólk af öllu landinu saman og æfði fjölbreytt verkefni bæði á landi og á sjó. Meðal verkefna voru björgun í fjalllendi, leit að týndu fólki, fyrsta hjálp, sporrakning, sjóbjörgun og köfun. Æfingin var unnin í samstarfi við aðra viðbragsaðila og var meðal annars æft…Lesa meira

true

Innlausnamarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur boðað að innlausnamarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár verði haldinn í byrjun nóvember. Innlausnarverð er núvirt andvirði beingreiðslna næstu tveggja ára, eða kr. 13.396 á ærgildið. Það greiðslumark sem er innleyst er jafnframt boðið til sölu á innlausnarverði. Sauðfjárbændur sem eiga 100 kindur eða fleiri og hafa ásetningshlutfallið 1,0 eða hærra eiga forgang…Lesa meira