Fréttir

true

Styrkja samvinnurými

Innviðaráðuneytið hefur úthlutað 27 milljónum króna til 14 verkefna til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Stærstu upphæðirnar renna til stofnunar klasa í jaðarbyggðum og fá Vopnafjörður, Stöðvarfjörður og Grindavík hæstu úthlutanir. Tveir styrkir renna til Vesturlands. Samvinnurými Röst á Hellissandi fær eina milljón króna, en umsækjandi er Snæfellsbær. Þá fær Rýmið á Akranesi…Lesa meira

true

Aðföng innkalla Bónus vanilludropa

„Með hliðsjón af velferð neytenda hafa Aðföng, að höfðu samráði við Bónus og H-Berg ehf, ákveðið að taka úr sölu og innkalla Bónus Vanilludropa. Innköllunin varðar allar best fyrir dagsetningar og er tilkomin vegna óstaðfests gæðaflokks hráefnis í vörunni,“ segir í tilkynningu. Varan hefur nú verið tekin úr sölu í verslunum. Upplýsingar um vöruna: Vörumerki:…Lesa meira

true

Vaxandi ánægja mælist meðal nemenda Háskólans á Bifröst

Niðurstöður nýrrar gæðakönnunar meðal nemenda Háskólans á Bifröst sýna mikla ánægju með nám og kennslu við skólann. Alls segjast 93% nemenda myndu mæla með námi við háskólann og 95% telja skipulag námsins gott. Niðurstöðurnar sýna jafnframt að ánægja nemenda með gæði námsins hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár. Gæðakönnunin var send út í september…Lesa meira

true

Endurskoða lög um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur skipað starfshóp sem endurskoða á lög um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr. Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu að til að dýraeigendur geti uppfyllt skyldur sínar gagnvart læknishjálp fyrir dýr sín eða aflífun verða einkum rýnd þau atriði sem snúa að reglum um starfsleyfi, lágmarks dýralæknaþjónustu og fyrirkomulag vakta á…Lesa meira

true

Gistinóttum fjölgaði í september

Gistinóttum á hótelum á Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði um 7,2% í september miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt nýjum bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Aukningin var með því mesta sem mældist á landinu, en jafnframt batnaði nýting hótelherbergja á svæðinu meira en í öðrum landshlutum. Herbergjanýting á Vesturlandi og Vestfjörðum jókst um 5,1% milli ára, sem…Lesa meira

true

Opið hús í Heiðarskóla á morgun

Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit býður til opins húss föstudaginn 6. nóvember þar sem nemendur sýna afrakstur fjölbreyttrar þemavinnu um orku. Undanfarnar vikur hafa þeir kynnt sér ólíka orkugjafa, rannsakað nýtingu þeirra og fræðst um mikilvægi orku í daglegu lífi og samfélaginu. Dagskráin hefst með samsöng í sal skólans kl. 8:15 í fyrramálið, sem stendur í um…Lesa meira

true

Byggðarráð vill stofna sérstaka Bifrastarnefnd

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í síðustu viku að leggja til við sveitarstjórn að stofnuð verði sérstök Bifrastarnefnd. Sveitarstjóra var falið að fullvinna erindisbréf nefndarinnar þar sem kveðið verður á um hlutverk hennar, skipan og starfstíma. Gert er ráð fyrir að nefndin starfi í tvö ár og að sveitarstjórn kjósi í hana aðal-…Lesa meira

true

Skóflustunga tekin að parhúsi í Búðardal

Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri Dalabyggðar og Iða Marsibil Jónsdóttir framkvæmdarstjóri Leigufélagsins Bríetar tóku í dag fyrstu skóflustungu að nýbyggingu að Borgarbraut 6-8 í Búðardal. Um er að ræða parhús en hvor íbúð um sig verður 80 fermetrar og skiptist húsið í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og forstofu. Húsið verður vel staðsett í miðjum bænum.…Lesa meira

true

Kanna hvort herða þurfi reglur um jarðakaup erlendra aðila

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur skipað lögfræðingahóp sem falið er að kortleggja eignarhald erlendra aðila á íslenskum jörðum og kanna hvort þörf sé á að takmarka frekar jarðakaup þeirra hér á landi. Meginverkefni hópsins er að greina umfang erlends eignarhalds á jörðum landsins, meta hvaða áskoranir slíku eignarhaldi kunni að fylgja til framtíðar og skoða…Lesa meira

true

Veglokun framlengd um einn sólarhring

Vegna framkvæmda við hringtorg og hjáleið á vegamótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar verður Akrafjallsvegur lokaður frá hádegi í dag, mánudag, til hádegis föstudaginn 6. nóvember. Það er sólarhring lengri lokun en upphaflega var kynnt. Lokun er við: •          Vestri-Reyni austan við Akranes, við vegamót Innnesvegar og Arkafjallsvegar. Hjáleið um Innnesveg. •          Flóahverfi, aðkoma að Flóahverfi úr…Lesa meira