
Opið hús í Heiðarskóla á morgun
Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit býður til opins húss föstudaginn 6. nóvember þar sem nemendur sýna afrakstur fjölbreyttrar þemavinnu um orku. Undanfarnar vikur hafa þeir kynnt sér ólíka orkugjafa, rannsakað nýtingu þeirra og fræðst um mikilvægi orku í daglegu lífi og samfélaginu.