
Endurskoða lög um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur skipað starfshóp sem endurskoða á lög um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr. Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu að til að dýraeigendur geti uppfyllt skyldur sínar gagnvart læknishjálp fyrir dýr sín eða aflífun verða einkum rýnd þau atriði sem snúa að reglum um starfsleyfi, lágmarks dýralæknaþjónustu og fyrirkomulag vakta á landsvísu.