
Veglokun framlengd um einn sólarhring
Vegna framkvæmda við hringtorg og hjáleið á vegamótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar verður Akrafjallsvegur lokaður frá hádegi í dag, mánudag, til hádegis föstudaginn 6. nóvember. Það er sólarhring lengri lokun en upphaflega var kynnt.
Lokun er við:
• Vestri-Reyni austan við Akranes, við vegamót Innnesvegar og Arkafjallsvegar. Hjáleið um Innnesveg.
• Flóahverfi, aðkoma að Flóahverfi úr norðri, um Hringveg og Akrafjallsveg.
• Akranesveg við Hesthúsatorg, hjáleið um Innnesveg