
Vaxandi ánægja mælist meðal nemenda Háskólans á Bifröst
Niðurstöður nýrrar gæðakönnunar meðal nemenda Háskólans á Bifröst sýna mikla ánægju með nám og kennslu við skólann. Alls segjast 93% nemenda myndu mæla með námi við háskólann og 95% telja skipulag námsins gott. Niðurstöðurnar sýna jafnframt að ánægja nemenda með gæði námsins hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár.