
Styrkja samvinnurými
Innviðaráðuneytið hefur úthlutað 27 milljónum króna til 14 verkefna til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Stærstu upphæðirnar renna til stofnunar klasa í jaðarbyggðum og fá Vopnafjörður, Stöðvarfjörður og Grindavík hæstu úthlutanir. Tveir styrkir renna til Vesturlands. Samvinnurými Röst á Hellissandi fær eina milljón króna, en umsækjandi er Snæfellsbær. Þá fær Rýmið á Akranesi sömu upphæð, eða eina milljón króna, og umsækjandi er Muninn kvikmyndagerð ehf.