Byggðarráð vill stofna sérstaka Bifrastarnefnd

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í síðustu viku að leggja til við sveitarstjórn að stofnuð verði sérstök Bifrastarnefnd. Sveitarstjóra var falið að fullvinna erindisbréf nefndarinnar þar sem kveðið verður á um hlutverk hennar, skipan og starfstíma. Gert er ráð fyrir að nefndin starfi í tvö ár og að sveitarstjórn kjósi í hana aðal- og varamenn.