Fréttir

true

Samherji kaupir Bjarna Ólafsson AK

Samherji hefur fest kaup á uppsjávarskipinu Bjarna Ólafssyni AK 70 frá Síldarvinnslunni í Neskaupstað. Skipið var afhent í Neskaupstað í gær og heldur þaðan beint til síldveiða. Gert er ráð fyrir að skipið komi til heimahafnar á Akureyri á næstu vikum. Þá verður því gefið nýtt nafn, en það fer í hefðbundið viðhald og undirbúið…Lesa meira

true

Bandero var dregið til hafnar í Reykjavík

Bandero, skip Paul Watson samtakanna, var undir kvöld í gær dregið frá Akraneshöfn til hafnar í Reykjavík. Það var gert af öryggisaðstæðum í ljósi slæmrar veðurspár. Bandero hefur legið við bryggju á Akranesi frá því í ágúst en áður hafði Landhelgisgæslan kyrrsett skipið í kjölfar ógnandi aðgerða skipverja við að torvelda hvalveiðar. Það voru Faxaflóahafnir…Lesa meira

true

Vonskuveður víða um land

Undir morgun tók að hvessa við suðurströnd landsins og síðan færðist veðrið norður um. Óvenjulega djúp og kröpp lægð einkennir veðrið í allan dag. Búast má við að versta veðrið verði á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra þegar líður á daginn. Viðvaranir, gular og appelsínugular, eru í gildi um allt land vegna hvassviðris og úrkomu, sem…Lesa meira

true

Gamlar bifreiðamyndir til sýnis í Búðardal

Ljósmyndir af gömlum bifreiðum úr safnkosti Byggðasafns Dalamanna eru nú til sýnis í anddyri stjórnsýsluhússins í Búðardal. Myndirnar eru allar svarthvítar og spanna tímabilið frá um 1935 til 1970. Þær veita áhugaverða innsýn í bílasögu fyrri tíma. Safnið leitar jafnframt til almennings eftir upplýsingum um bifreiðarnar, svo sem tegundir þeirra og sögu. Markmiðið er að…Lesa meira

true

Örstyrkir í boði til menningarverkefna

Menningarnefnd Snæfellsbæjar hefur auglýst eftir umsóknum um örstyrki til verkefna sem auðga lista- og menningarlíf í sveitarfélaginu næsta vetur. Umsóknarfrestur er til 12. nóvember. Styrkirnir eru ætlaðir fjölbreyttu menningarstarfi, svo sem tónleikahaldi, listsýningum, útgáfu og öðrum verkefnum sem glæða menningarlífið og koma íbúum til góða. Skilyrði er að verkefnin verði framkvæmd veturinn 2026–2027. Íbúar á…Lesa meira

true

Þórsarar of stór biti fyrir Skallagrímskonur – næsti leikur í kvöld

Skallagrímskonur máttu sætta sig við stórt tap gegn Þór frá Akureyri í 1. deild kvenna í körfuknattleik á sunnudaginn. Lokatölur í Borgarnesi urðu 56:108, en gestirnir höfðu yfirhöndina frá upphafi til enda. Þórsarar byrjuðu af miklum krafti og leiddu 30:15 eftir fyrsta leikhluta. Skallagrímskonur náðu að halda betur í við gestina í öðrum leikhluta, sem…Lesa meira

true

Kröpp lægð sem mun hafa áhrif víða

Á morgun er spáð að djúp haustlægð muni hafa áhrif víða um land. Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi, en versta veðrinu er spáð á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, þar sem viðvaranir eru appelsínugular. Gular viðvaranir fyrir Breiðafjörð og Faxaflóa taka gildi klukkan 9 í fyrramálið og gilda til miðnættis. Lægðin mun fyrst ganga…Lesa meira

true

Tónlistargleði og hlýjar stundir á Höfða

Það var sannkölluð tónlistarveisla á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi síðdegis í gær þegar eldri söngnemendur Tónlistarskóla Akraness heimsóttu heimilið og héldu tónleika fyrir íbúa. Salurinn var þétt setinn og undirtektir góðar. Ljóst var að tónlistin féll í góðan jarðveg og færði heimilisfólki ánægjulega tilbreytingu í daglegt líf. Slíkar heimsóknir eru dýrmætur þáttur í samfélaginu á…Lesa meira

true

Loðnumæling og ráðgjöf undir væntingum

Uppfærð veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og Náttúrustofnunar Grænlands (GINR) fyrir komandi loðnuvertíð er upp á ríflega 105 þúsund tonn. „Ráðgjöfin byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum í september síðastliðnum sem reyndust töluvert undir væntingum. Vegna óhagstæðra aðstæðna nyrst á leiðangurssvæðinu náðist ekki yfir allt útbreiðslusvæði stofnsins og því má gera ráð fyrir að stærð hans sé vanmetin,“…Lesa meira

true

Vör valin besta farþegamiðstöðin í Evrópu

Vör, ný fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna í Reykjavíkurhöfn, hefur hlotið World Cruise Awards sem besta farþegamiðstöð skemmtiferðaskipa í Evrópu árið 2026. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk höfn eða farþegamiðstöð hlýtur verðlaunin. Reykjavíkurhöfn var með farþegamiðstöðinni Vör ein fjórtán tilnefndra hafna í Evrópu og keppti við rótgrónar skemmtiferðaskipahafnir álfunnar í Barcelona, Civitavecchia við Róm, Amsterdam,…Lesa meira