Fréttir

true

Jeppar í lífi þjóðar – endurbætt og aukin útgáfa

Út er komin hjá Forlaginu aukin og endurbætt útgáfa af bókinni Jeppar í lífi þjóðar, eftir Örn Sigurðsson. Nýja bókin er 320 síður að lengd með 700 ljósmyndum sem margar hafa hvergi sést áður. Samgöngubylting varð á Íslandi um miðja síðustu öld þegar þúsundir Willys-jeppa streymdu að hliðum gömlu herjeppanna, og brátt renndu Landróverar og…Lesa meira

true

Umhverfisverðlaun Borgarbyggðar 2026

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar afhenti í morgun árlegar viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir og bújarðir í sveitarfélaginu auk samfélagsviðurkenningar. Kristján Ágúst Magnússon formaður nefndarinnar lýsti niðurstöðu nefndarinnar. Verðlaun eru afhent í fimm flokkum og var niðurstaðan eftirfarandi: Gleym mér ei er snyrtilegasta atvinnulóðin Gróðrarstöðin Gleym mér ei við Sólbakka í Borgarnesi var valin snyrtilegasta lóð við…Lesa meira

true

Talað saman í FVA á laugardaginn

Skagamönnum á öllum aldri er boðið að hittast í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi næstkomandi laugardag kl. 14 í samtali um: „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“ Verður efnt til slíks samtals um allt land. Nemendur grunn- og framhaldsskóla leiða samtölin en öllum kynslóðum er boðið að taka þátt, hlusta á ólík sjónarmið og ræða hvað…Lesa meira

true

Þjóðbúningamessa í Akraneskirkju

Í tilefni af 130 ára vígsluafmæli Akraneskirkju, sem var fyrr á þessu ári, verður haldin Þjóðbúningamessa í kirkjunni sunnudaginn 11. október kl. 13:00. Þar mun séra Ólöf Margrét Snorradóttir messa og kórinn Hljómur, kór eldri borgara á Akranesi, syngja. Allir eru velkomnir en ekki síst þeir sem sem eiga og vilja skarta íslenska þjóðbúningnum, en…Lesa meira

true

Stækka Kaldalæk í Sjómannagarðinum

Þessa dagana er unnið við stækkun Kaldalæks sem er í Sjómannagarðinum í Ólafsvík. Framkvæmdir hófust í ágúst og er Smiðjan Fönix aðalverktaki. Hefur Smiðjan ráðið TS vélaleigu til að sjá um alla jarðvinnu og JT sem sér um að sjálft húsið og alla trésmíði. Viðbygging ásamt tengibyggingu er 77,7 fermetrar að stærð og verður Kaldilækur…Lesa meira

true

Vilja bæta gæði þeirra farsíma sem seldir eru

Fjarskiptastofa efnir til samráðs um drög að tilmælum um prófun innflytjenda og söluaðila á virkni farsíma áður en þeir eru settir á markað á Íslandi. Eftir lokun 2G- og 3G-farsímakerfanna hér á landi hefur komið í ljós að einhverjir farsímar eru ekki að ná tengingu við neyðarnúmerið 112 þrátt fyrir að þessi sömu tæki styðji…Lesa meira

true

Þurfa að færa bátana vegna steypuvinnu

Vegna vinnu við Norðurgarðinn í Ólafsvík er takmarkað landlegupláss fyrir smábáta. Því hafa nokkrir bátar fengið stæði á bílaplani við ísverksmiðjuna. Þórður Stefánsson hafnarstjóri í Snæfellsbæ segir í samtali við Skessuhorn að enn sé hægt að koma einhverjum bátum austan megin við olíutankanna. „En hingað til hefur smábátum verið komið fyrir bakvið Norðurbakkann, en núna…Lesa meira

true

Ungmenni leika fullorðna í sketsasamkeppni

Í tilefni Barnamenningarhátíðar Vesturlands efnir Hvalfjarðarsveit til skemmtilegrar sketsasamkeppni fyrir ungmenni á Vesturlandi undir yfirskriftinni „Leiktu fullorðna.“ Þátttakendur eru hvattir til að gefa sköpunarkraftinum lausan tauminn, semja handrit, bregða sér í hlutverk og festa afraksturinn á filmu. Verkefnið gefur ungmennum þannig tækifæri til að spreyta sig á handritagerð, leik og kvikmyndagerð – og ekki síst…Lesa meira

true

Opinn fyrirlestur um streitu, kulnun og áföll

Kvenfélagið Sigurvon stendur fyrir opnum fyrirlestri í félagsheimilinu á Lýsuhóli fimmtudaginn 8. október kl. 18–21. Þar mun Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun NLFÍ, fjalla um taugakerfið, streitu, kulnun og áföll, en hún hefur unnið mikið með þessi málefni í gegnum tíðina. Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á súpu og brauð að fyrirlestri…Lesa meira

true

Líðan nemenda batnar en einelti eykst meðal yngri barna

Líðan grunnskólanema hefur að mörgu leyti batnað undanfarin ár. Fleiri líður vel í skólanum, lífsánægja hefur aukist og færri glíma við tíða andlega vanlíðan. Á móti hefur einelti aukist meðal yngri nemenda og merki eru um vaxandi einmanaleika meðal unglinga. Þetta kemur fram í niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026 sem lögð var fyrir nemendur í 4.–10.…Lesa meira