
Jóhanna Jóhannsdóttir í Borgarnesi var í hópi þeirra ljósmæðra sem gengu fyrir um úthlutun jeppa, enda náði umdæmi hennar yfir allt Borgarfjarðarhérað auk þriggja hreppa í Hnappadalssýslu. Myndin er ein fjölmargra mynda af jeppum í bókinni.
Jeppar í lífi þjóðar – endurbætt og aukin útgáfa
Út er komin hjá Forlaginu aukin og endurbætt útgáfa af bókinni Jeppar í lífi þjóðar, eftir Örn Sigurðsson. Nýja bókin er 320 síður að lengd með 700 ljósmyndum sem margar hafa hvergi sést áður.